Ekkert framleitt af nautakjöti í maí

Ekkert var fram­leitt af nauta­kjöti í síð­asta mán­uði, sam­kvæmt sam­an­tekt Hag­stof­unnar um kjöt­fram­leiðslu í maí. Ástæðan er verk­fall dýra­lækna frá seinni hluta apríl til 14. júní síð­ast­lið­inn, þegar lög voru sett sem bönn­uðu verk­falls­að­gerðir stétt­ar­fé­laga BHM. Í maí 2014 var fram­leitt um 290 tonn af nauta­kjöti, sem er flokkað af Hag­stof­unni í kálfa, ung­naut og kýr. Í lok maí 2014 var búið að fram­leiða um 1.400 tonn af nauta­kjöti sam­an­borið við um 1.080 tonn á sama tíma­bili í ár.


Í frétt á vef­síðu Lands­sam­bands kúa­bænda frá 22. júní síð­ast­liðnum er fjallað um sam­drátt í nauta­kjöts­fram­leiðslu í maí. Þar segir að aðeins 443 kíló af naut­gripa­kjöti hafi verið lögð inn í afurða­stöð í mán­uð­inum. Það er sam­dráttur upp á 99,8 pró­sent. „Af þessum tölum má ráða, að verk­falls­að­gerðir eft­ir­lits­dýra­lækna bitn­uðu gríð­ar­lega harka­lega á kjöt­fram­leiðsl­unni í land­inu og ollu miklu tjóni,“ segir í frétt­inni en í henni er líka fjallað um slátrun ali­fugla og svína.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar nam fram­leiðsla á svína­kjöti um 405 tonnum í maí sam­an­borið við 513 tonn í maí 2014 og dróst þannig saman um fjórð­ung. Slátrun ali­fugla í maí dróst lít­il­lega saman milli ára.

Í versl­unum setti verk­fall dýra­lækna svip sinn strax í byrjun maí, en þá var skortur á fersku kjúklinga­kjöti, nauta­kjöti og svína­kjöti. Greint var frá í fjöl­miðlum að svína­bændur fengu und­an­þágur til slátr­unar en með skil­yrðum um að kjöt fær ekki í versl­anir. Því var sölu­sam­dráttur jafn­framt mik­ill í mán­uð­inum en þær tölur liggja ekki fyrir hjá Hag­stof­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár