Tólf sagt upp hjá MP banka - Nýtt skipurit kynnt hjá sameinuðum banka

Tólf starfs­mönnum MP banka var í dag sagt upp störfum, átta körlum og fjórum konum, í tengslum við sam­runa MP banka og Straums fjár­fest­inga­banka. Sam­run­inn gekk form­lega í gegn í dag en hlut­hafar kusu nýja sjö manna stjórn. Hildur Þór­is­dóttir, starfs­manna­stjóri MP banka, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að tólf hafi verið sagt upp í dag, af ýmsum sviðum.

Sam­ein­aður banki, sem sam­ein­ast undir kenni­tölu MP banka, mun starfa undir nafn­inu MP Straumur þar til nýtt nafn verður kynnt. Skipu­lagi bank­ans breytt í dag en það sam­anstendur af fjórum ein­ingum, eigna­stýr­ingu, mark­aðsvið­skiptum, fyr­ir­tækja­sviði og alþjóða­sviði.

Yfirmenn í sam­ein­uðum banka verða eft­ir­far­andi: Sigurður Hann­es­son verður fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar, Bjarni Eyvinds Þrast­ar­son verður fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta en hann var áður fram­kvæmda­stjóri mark­aða, Ásgeir Helgi Reyk­fjörð, fyrrum yfir­lög­fræð­ingur MP banka, verður fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs, og fram­kvæmda­stjóri alþjóða­sviðs verður Magnús Bjarna­son, nýr starfs­maður bank­ans. Þá verður Magnús Ingi Ein­ars­son,fyrrum fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá Straumi, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs, Hildur Þór­is­dóttir verður mark­aðs- og mannauðs­stjóri, Thomas Skov Jensen verður for­stöðu­maður áhættu­stýr­ingar, Birna Hlín Kára­dóttir verður yfir­lög­fræð­ingur og Daníel Pálmason verður reglu­vörður bank­ans.

Magnús Bjarna­son starf­aði áður sem for­stjóri Icelandic Group á árunum 2012 til 2014. Fyrir þann tíma starf­aði hann meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stjóri mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­sviðs Lands­virkj­unar, alþjóða­sviðs Íslands­banka og dóttur fyr­ir­tækis þess í Banda­ríkj­unum Glitnir Capital Corporation sem síðar varð Glacier Partners. Magnús var einnig við­skipta­full­trúi og aðal­ræð­is­maður Íslands í New York á árunum 1997 til 2003. Hann tekur til starfa hjá MP Straumi þann 1. ágúst næst­kom­andi, að því er fram kemur í til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum í kvöld.

Í til­kynn­ing­unni segir Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri bank­ans, að vinnu við sam­ein­ingu sé alls ekki lokið. „Þetta eru stór tíma­mót og ástæða til að fagna því hversu vel þessi sam­ein­ing hefur gengið fyrir sig. Vinnu við sam­ein­ing­una er þó alls ekki lokið. Mikið verk er framundan við að sam­eina fyr­ir­tækin og allt það góða starfs­fólk sem hér starfar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár