Höfuðstólslækkun mest í Reykjavík og á SV-landi hjá 46 til 55 ára

Aðeins um fimm­tíu pró­sent þeirra sem voru 30 ára eða yngri á árunum 2008 og 2009, og áttu eft­ir­stöðvar árið 2013 á verð­tryggðu íbúða­láni, sótti um lækkun skulda í gegnum Leið­rétt­ing­una. Þessi hópur fékk að með­al­tali minnst umsækj­enda í Leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu. Í nýrri skýrslu fjár­mála­ráð­herra segir að ástæðan sé sú að þetta fólk var ýmist nýkomið út á fast­eigna­mark­að­inn eða hafði fengið hlut­falls­lega mikla lækkun skulda í fyrri úrræðum, á borð við 110 pró­sent leið­ina eða skulda­að­lögun.

Hlut­falls­lega flestir sem sóttu um lækkun hús­næð­is­skulda voru á aldr­inum 46 til 55 ára árið 2013. Það fólk var þá 41 til 50 ára árið 2008 en aðgerðir stjórn­valda mið­uð­ust við stöðu höf­uð­stóls í árs­lok 2013 og var ætlað að „leið­rétta“ áhrif verð­bólgu­skots á verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2007 til 2010. Með­al­skulda­lækkun þessa ald­urs­hóps var 1.360 þús­und krónur.



Súlurnar og vinstri ásinn á mynd­inni hér að ofan sýna hversu háar fjár­hæð fólk fékk lækkað að með­al­tali eftir aldri. Þeir sem voru 66 ára og eldri fengu að með­al­tali um milljón króna skulda­lækkun og fólk á aldr­inum 56-65 ára fékk að með­al­tali um 1.200 þús­und króna skulda­lækkun. Yngsti hóp­ur­inn, sem árið 2013 var yngri en 35 ára, fékk að með­al­tali minnst eða tæp­lega 950 þús­und krónur. Alls fengu 57 þús­und heim­ili höf­uð­stólslækkun á verð­tryggðum íbúða­lánum í tengslum við Leið­rétt­ing­una. Hver ald­urs­flokkur telur á bil­inu um fimm þús­und til tæp­lega 16 þús­und heim­ili.



Með­al­eft­ir­stöðvar lána voru hæstar hjá fólki sem var árið 2013 á aldr­inum 36 til 45 ára, eða um 22 millj­ónir króna. Þær voru lægstar hjá 66 ára og eldri, um 11,5 millj­ónir.


Hlut­falls­lega sóttu flestir um höf­uð­stólslækkun í sveit­ar­fé­lögum í nágrenni Reykja­víkur eða 81 pró­sent þeirra sem voru með eft­ir­stöðvar árið 2013. Hlut­falls­lega fæstir sóttu um á Norð­ur­landi vestra eða um 73 pró­sent. „Í Reykja­vík sóttu 78% um skulda­lækkun, tæp­lega 22 þús­und heim­ili af þeim lið­lega 28 þús­und heim­ilum sem skuld­uðu árið 2013. Með­al­fjár­hæð­irnar voru mis­mun­andi á milli lands­hluta í sam­ræmi við mis­mun­andi skulda­stöðu heim­ila eftir svæðum. Með­al­fjár­hæðin var hæst í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur, 1.388 þús­und krónur en lægst á Vest­fjörðum, 737 þús­und krónur,“ segir í skýrsl­unni.




Með­al­höf­uð­stólslækkun var mest á Suð­vest­ur­landi, nærri 1.400 þús­und hjá hverju heim­ili, og í Reykja­vík þar sem lækk­unin var að með­al­tali rúm­lega 1.200 þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár