Leiðréttingin: Þriðjungur skuldaði minna en tíu milljónir

Um 18 þús­und heim­ili, af alls um 57 þús­und heim­ilum sem fengu skulda­lækkun með Leið­rétt­ing­unni, skuld­uðu minna en tíu millj­ónir króna af verð­tryggðu hús­næð­is­láni. Það er um þriðj­ungur þeirra sem fengu skulda­lækkun. Innan við sjö þús­und heim­ili skuld­uðu yfir 35 millj­ónir króna, lið­lega 33 þús­und heim­ila skuld­uðu minna en 20 millj­ónir og tæp­lega 90 pró­sent þeirra heim­ila sem áttu eft­ir­stöðvar skuld­uðu innan við þrjá­tíu millj­ónir króna. Þetta er meðal þess sem lesa má úr skýrslu fjár­mála­ráð­herra um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra hús­næð­is­lána.

Grafið hér að neðan er unnið upp úr skýrsl­unni, þar sem sam­bæri­leg mynd er birt, og sýnir fjölda heim­ila eftir eft­ir­stöðvum fast­eigna­skulda. Flestir skuld­uðu árið 2013, á við­mið­un­ar­ár­inu, innan við tíu millj­ónir króna.


Fram kemur í skýrsl­unni að þau heim­ili sem skuld­uðu minna en 30 millj­ónir króna, það eru tæp­lega 89% þeirra sem fengu Leið­rétt­ingu, fengu að með­al­tali 1.130 þús­und króna lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána. „Á heild­ina litið sóttu 78% heim­ila sem skuld­uðu í íbúð sinni um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána. Heimili sem skuld­uðu á bil­inu 35 til 50 millj­ónir króna fengu hæstu lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána, að með­al­tali 1.940 þús­und krónur.“

Alls bár­ust 69 þús­und umsóknir um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána vegna áranna 2008 og 2009. Að baki þess­ara umsókna voru 105 þús­und full­orðnir ein­stak­lingar. Af umsækj­endum áttu lið­lega 90 þús­und rétt á lækkun höf­uð­stóls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár