Skýrsla um Leiðréttinguna komin út: Tekjuhæstir fengu mest

Með­al­lækkun á hóf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­skulda var mest hjá tveimur efstu tekju­tíu­undum umsækj­enda. Með­al­lækk­unin hjá tekju­tí­undum var á bil­inu 890 þús­und krónur til 1.620 þús­und krónur. Annað tekju­bilið, það er næst­lægsta tekju­tí­und þeirra sem fengu leið­rétt­ingu, fékk minnstu lækk­un­ina að með­al­tali. Frá fjórðu tekju­tí­und fer með­al­fjár­hæðin hækk­andi, mest fengu níunda og tíunda tekju­tí­undir.


Þetta er meðal þess sem lesa má úr skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nið­ur­stöður höf­uð­stólslækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána, hin svo­kall­aða Leið­rétt­ing. Skýrslan var lögð fyrir Alþingi í dag.


Hlut­falls­lega flestir sem sóttu um lækkun voru á aldr­inu 46 til 55 ára, það eru þeir sem voru 41 til 50 ára árið 2008. Með­al­skulda­lækkun þeirra nam 1.360 þús­undum króna. Minnsta leið­rétt­ingu fengu 35 ára og yngri en á mynd­unum hér að neðan er miðað við aldur fram­telj­enda árið 2013, fimm árum eftir við­mið­un­ar­tíma­bilið.




Alls bár­ust 69 þús­und umsóknir um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána vegna áranna 2008 og 2009, en að baki þeim voru 105 þús­und full­orðnir ein­stak­lingar. Af umsækj­endum áttu lið­lega 90 þús­und rétt á lækkun höf­uð­stóls en tæp­lega 15 þús­und áttu ekki rétt.


Í skýrsl­unni kemur fram að að sam­skatt­aðir hafi fengið hærri lækkun höf­uð­stóls að með­al­tali en ein­stak­lingar og heim­ili með börn hærri leið­rétt­ingu en barns­laus. „Tvær meg­in­skýr­ingar eru á mis­mun á upp­hæð lækk­unar höf­uð­stóls eftir þjóð­fé­lags­hópum, fjöl­skyldu­stærð, búsetu, aldri og tekjum. Annars vegar er íbúða­skuld mis­mun­andi eftir þessum þáttum, hinir tekju­hærri skulda að jafn­aði meira en fjöl­skyldur með lægri tekjur, hinir eldri minna en þeir sem yngri eru, stórar fjöl­skyldur skulda meira en hinar minni og íbúar lands­byggð­ar­innar skulda lægri upp­hæðir en þeir sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna lægra íbúða­verðs. Hins vegar er lækkun höf­uð­stóls mis­mun­andi eftir því hvaða fyrri úrræði íbúð­ar­eig­endur höfðu nýtt sér. Að þessu slepptu er eðli höf­uð­stólslækk­un­ar­innar það að sama upp­hæð skuldar fékk sömu lækkun höf­uð­stóls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár