Óðinn Jónsson hættir í Morgunútgáfunni á RÚV

Óðinn Jónsson, fyrr­ver­andi frétta­stjóri á frétta­stofu RÚV, hættir sem umsjón­ar­maður Morg­un­út­gáf­unnar, sem hefur verið send út á sam­tengdum rásum Rásar 1 og 2 und­an­farin miss­eri, og byrjar með nýjan morg­un­þátt á Rás 1 í haust.

Nýi þátt­ur­inn verður sendur út á sama tíma og Morg­un­út­gáfan, og því verður sam­hliða útsend­ingum þátt­ar­ins á Rás 1 og 2 hætt, og hann færður aftur í sitt gamla horf þegar hann hét Morg­un­út­varpið. Þátt­ur­inn hans Óðins hefur enn ekki hlotið nafn, en hann verður að hluta frétta­tengdur. Þá mun Bogi Ágústs­son, frétta­mað­ur­inn góð­kunni, hætta viku­legum heim­sóknum í Morg­un­út­gáf­una og færa sig um set yfir á Rás 1 og fara viku­lega yfir heims­frétt­irnar í nýja morg­un­þætt­inum á Rás 1.

Guðrún Sóley Gests­dóttir, sem er einn umsjón­ar­manna Morg­un­út­gáf­unnar í dag, hefur verið boðið að sjá um þátt­inn áfram á Rás 2 í breyttri mynd, sem hún hefur þegið. Þá mun Hrafn­hildur Hall­dórs­dóttir, þriðji umsjón­ar­maður Morg­un­út­gáf­unnar, hverfa til ann­arra starfa hjá Rás 2 í haust þegar áður­nefndar breyt­ingar á morg­un­dag­skrá Rás 1 og 2 taka gildi.

Frank Þórir Hall, dag­skrár­stjóri Rásar 2, segir í sam­tali við Kjarnann að til­kynnt verði um fleiri umsjón­ar­menn að Morg­un­út­varp­inu innan tíðar, en unnið sé að því að manna stöð­urnar.

Hann segir breyt­ing­arnar á morg­un­dag­skrá Rásar 2, ekki til marks um að Morg­un­út­gáfan hafi ekki staðið undir vænt­ingum. „Við erum auð­vitað ætíð að horfa til þess hvernig við getum bætt dag­skrána og þessar hróker­ingar eru hluti af þeirri vinnu. Í fyrra var ákveðið að hafa sam­tengdan morg­un­þátt í vetur en nú erum við að gera nokkrar breyt­inagr fyrir næsta starfsár og þessar hróker­ingar eru hluti af þeim breyt­ingum. Okkur fannst eðli­legra að breyta þessu aftur, og leyfa rás­unum að hafa sitt eigið líf.“

Aðspurður um hvort hlust­unin á Morg­un­út­gáf­una hafi valdið von­brigðum, segir Frank svo ekki vera. „Hlust­unin er ekki ástæða þess að við ráðumst í þessar breyt­ingar. Svona aukum við þjón­ust­una á ný, í stað þess að draga úr henni. Nú hefur fólk val,“ segir Frank Þórir Hall dag­skrár­stjóri Rásar 2 í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár