Málsvarnarlaun verjenda alls 263 milljónir - 69 milljónir falla á ríkissjóð

Lög­manns­kostn­aður sak­born­ing­anna níu í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings nemur sam­tals um 263 millj­ónum króna. Af þeirri upp­hæð greið­ast 68 millj­ónir úr rík­is­sjóði, sam­kvæmt dóms­orði í dómi hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem kveð­inn var upp í dag og hefur verið birtur á vef­síðu hér­aðs­dóm­stól­anna.

Lög­manns­kostn­aður Hreiðars Más Sig­urðs­sonar nemur alls tæpum 48 millj­ónum króna. Þar af greið­ist einn þriðji hluti úr rík­is­sjóði eða tæpar 16 millj­ónir króna. Hörður Felix Harð­ar­son hrl. var lög­maður Hreiðars Más. Sigurður Ein­ars­son greiðir lög­manni sínum, Gesti Jónssyni hrl. sam­tals um 23,1 milljón króna auk þess sem einn þriðji hluti greið­ist úr rík­is­sjóði, eða um 11,6 millj­ónir króna til við­bótar. Lögmaður Ingólfs Helga­sonar, Grímur Sig­urðs­son hrl., fær 41,3 millj­ónir króna og greiðir Ingólfur tvo þriðju hluta en einn þriðji hluti greið­ist úr rík­is­sjóði. Fyrri verj­andi Ingólfs, Jóhannes Bjarni Björns­son hrl., fær greiddar 17,2 millj­ónir úr rík­is­sjóði.


Einar Pálmi Sig­ur­munds­son greiðir verj­anda sínum, Gizuri Berg­steins­syni hrl., alls 14,6 millj­ónir króna. Birnir Sær Björns­son og Pétur Kristinn Guð­mars­sonar greiða hvor um sig 24,6 millj­ónir króna í lög­manns­kostnað, til Halldórs Jóns­sonar hrl. og Vífils Harð­ar­sonar hrl.


Bjarki H. Diego greiðir málsvarn­ar­laun að þriðju fjórða hluta en alls nemur upp­hæðin um 25,3 millj­ónum króna, auk þess sem fyrri verj­andi hans, Brynjar Níelsson hrl., fær greiddar um 1,6 millj­ónir.


Málsvarn­ar­laun verj­anda Magnúsar Guð­munds­sonar eru greidd úr rík­is­sjóði en verj­andi hans var Kristín Edwald hrl. Upphæðin nemur alls 19,9 millj­ónum króna. Sama gildir um málsvarn­ar­laun verj­anda Bjarkar Þór­ar­ins­dóttur, Halldórs Jóns­sonar hrl, sem nema um 10,8 millj­ónum króna.


Dæmt var í máli ákæru­valds­ins gegn nímenn­ing­unum í morgun. Sjö af níu voru dæmdir til refs­ingar en Björk Þór­ar­ins­dóttir og Magnús Guð­munds­son voru sýknuð. Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sigurður Ein­ars­son, Ingólfur Helgason, Einar Pálmi Sig­munds­son, Birnir Sær Björns­son, Pétur Kristinn Guð­munds­son og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir. Hreiðari Má var ekki gerð frek­ari refs­ing, en hann afplánar nú þegar fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm vegna Al Thani-máls­ins svo­kall­aða. Sigurður Ein­ars­son fékk eins árs hegn­ing­ar­auka við þann fjög­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Thani- mál­inu. Ingólfur Helgason hlaut þyngsta dóm­inn, fjög­urra og hálfs árs fang­elsi að frá­dregnu gæslu­varð­haldi sem hann sætti á sínum tíma. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær og Pétur Kristinn fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár