18.500 manns starfa við ferðaþjónustu

Um 18.500 manns starfa við ferða­þjón­ustu á Íslandi. Það eru um 9,4 pró­sent vinnu­aflsins í maí síð­ast­liðnum. Miðað við þróun síð­ustu ára, og fjölgun ferða­manna milli ára, mun starfs­fólki í ferða­þjón­ustu fjölga enn frekar í júní, júlí og ágúst. Þegar mest lét í fyrra störf­uðu um tutt­ugu þús­und manns við ferða­þjón­ustu.

Hag­stofan birti í dag upp­lýs­ingar um fjölda stafs­manna og veltu í nokkrum ein­kenn­andi atvinnu­greinum í ferða­þjón­ustu. Flestir vinna við veit­inga­sölu og -þjón­ustu, eða um 7.500 manns sam­an­borið við 7.200 í maí 2014. Um 4.300 starfa við rekstur gisti­staða og um 2.800 við far­þega­flutn­inga með flugi.

Fjöldi starfs­manna í ferða­þjón­ustu eftir greinum

|

Create infographics

Fjöldi starfs­manna í ferða­þjón­ustu á Íslandi sýnir ágæt­lega þær miklu árs­tíð­ar­sveiflur sem eru á komu ferða­manna til lands­ins og umsvif í atvinnu­líf­inu vegna komu þeirra. Línu­ritið sýnir fjölda starfs­manna í hverjum mán­uði frá jan­úar 2013 til maí 2015. Á síð­asta ári voru starfs­menn fæstir um 14.000 tals­ins, í jan­úar, en flestir í ágúst, þá um tutt­ugu þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár