Allir í peningastefnunefnd vildu hækka vexti og vilja hækka þá meira

Allir fimm nefnd­ar­menn í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands vildu hækka vexti um að minnsta kosti 0,5 pró­sentur á síð­asta fundi nefnd­ar­innar, fyrr í júní­mán­uði. Þeir voru hins vegar ekki sam­mála um hversu mikið og hratt ætti að hækka stýri­vexti. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að hækka stýri­vexti um 0,5 pró­sentu­stig, að til­lögu seðla­banka­stjóra. Fjórir greiddu atkvæði með til­lög­unni en einn kaus á móti og vildi hækka vexti um 1 pró­sentu. Einn þeirra sem kaus með til­lögu seðla­banka­stjóra hefði þó kosið að hækka vexti um 0,75 pró­sentur.

Tvær vikur eru síðan ákvörð­unin var til­kynnt og var fund­ar­gerð nefnd­ar­innar birt í dag, venju sam­kvæmt. Í pen­inga­stefnu­nefnd sitja Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, Þórarinn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ingur, Gylfi Zoega pró­fessor og Katrín Ólafs­dóttir lektor.

„Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að horfur um þróun launa­kostn­aðar, hækkun verð­bólgu­vænt­inga og vís­bend­ingar um öfl­ugan vöxt eft­ir­spurnar yllu því að óhjá­kvæmi­legt væri að bregð­ast strax við versn­andi verð­bólgu­horfum þrátt fyrir að verð­bólga væri enn undir mark­miði. Allir nefnd­ar­menn voru þeirrar skoð­unar að rétt væri að hækka vexti um að 6 minnsta kosti 0,5 pró­sentur og að rök væru fyrir áfram­hald­andi hækkun vaxta. Þeir voru hins vegar ekki sam­mála um hversu hröð aðlögun taum­halds­ins ætti að vera,“ segir í fund­ar­gerð­inni.


Helstu rök sem fram komu fyrir hækkun vaxta um 0,5 pró­sentur voru þau að verð­bólga væri enn lítil og ekki væri ljóst í hve ríkum mæli launa­hækk­unum yrði velt út í verð­lag eða mætt með hag­ræð­ingu fyr­ir­tækja. Á móti var bent á þá hættu að pen­inga­stefnan væri að bregð­ast of seint og of hægt við.


Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að „ein­sýnt virt­ist að hækka þyrfti vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum ætti að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma litið og senda um það skýr skila­boð með yfir­lýs­ing­unni nú“.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár