Fjölmiðlanefnd ekki aðhafst vegna umfjöllunar Íslands í dag en vinnur að tilmælum

Fjöl­miðla­nefnd hefur ekki aðhafst sér­stak­lega vegna umfjöll­unar Íslands í dag þann 28. maí síð­ast­lið­inn, þegar fjallað var um MS í þætt­inum án þess að tekið væri fram að fyr­ir­tækið borg­aði fyrir umfjöll­un­ina. Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Fjöl­miðla­nefndar, segir að nefnd­inni hafi ekki borist form­leg kvörtun vegna máls­ins en kvart­anir fái alla jafna for­gang í vinnu nefnd­ar­innar. Þá hafi nefndin ekki tekið þetta ein­staka mál upp að eigin frum­kvæði, eins og henni er heim­ilt að gera, en hefur lagt áherslu á að klára leið­bein­andi til­mæli sem ná um kost­aðar umfjall­anir og fleiri atriði sem varða aug­lýs­inga­kafla fjöl­miðla­laga.

Fjöl­miðla­nefnd hefur ekki fundað síðan málið rataði í fjöl­miðla og því ekki tekið ákvörðun um hvort hún muni aðhaf­ast sér­stak­lega.


Ísland í dag birti innslag um aug­lýs­inga­her­ferð Mjólk­ur­sam­söl­unnar þann 28. maí síð­ast­lið­inn. Stundin fjall­aði um málið, sem Kjarninn vakti fyrst athygli á, og hafði eftir Svani Val­geirs­syni, aug­lýs­inga- og mannauðs­stjóra 365, að mis­tök hafi átt sér stað við vinnslu efnis og því hafi ekki verið tekið fram að um kynn­ingu hafi verið að ræða.


Elfa Ýr seg­ist von­ast til að leið­bein­andi til­mæli Fjöl­miðla­nefnd verði til­búin í haust. Vinna hefur staðið yfir, meðal ann­ars í sam­ráði við Neyt­enda­stofu sem nýlega gaf út leið­bein­ingar um auð­þekkj­an­legar aug­lýs­ingar. Um miðjan apr­íl­mánuð óskaði Fjöl­miðla­nefnd meðal ann­ars eftir upp­lýs­ingum frá sjón­varps­stöðv­unum um umfjall­anir í frétta­þáttum og teg­und þeirra. Elfa Ýr segir kost­aðar umfjall­anir, án þess að það sé sér­stak­lega tekið fram, varða fleiri fjöl­miðla en aðeins Stöð 2 og að gera þurfi „skurk“ í þessum málum. „Í stað þess að fara í stakt mál höfum við lagt áherslu á að klára þessi leið­bein­andi til­mæli,“ segir hún.


Upp­haf­leg frétt hefur verið upp­færð með upp­lýs­ingum um að Fjöl­miðla­nefnd hefur ekki fundað frá því að málið kom upp í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár