Veiðigjöld hækka í 9,6 milljarða - Skortur á upplýsingum um afkomu

Álögð veiði­gjöld á næsta fisk­veiði­ári verða 9,6 millj­arðar og hækka um 12 pró­sent, eða úr um 8,5 millj­örðum frá yfir­stand­andi fisk­veiði­ári. Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar sam­þykkti á fundi sínum í morgun til­lögur um hækkun veiði­gjalda. Jón Gunn­ars­son, for­maður nefnd­ar­innar, segir hækk­un­ina vera í sam­ræmi við almennan afkomu­bata í grein­inni.

Fisk­veiði­árið hefst 1. sept­em­ber. Veiði­gjöld vegna fisk­veiði­árs­ins 2013 til 2014 voru 9,2 millj­arðar króna og árið áður voru þau 12,8 millj­arðar króna. Frum­varpið sem um ræður nú var lagt fram af Sigurði Inga Jóhanns­syni sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í apríl síð­ast­liðnum.


Í sam­tali við Kjarnann segir Jón að nokkrar breyt­ingar hafi verið gerðar á álögðum veiði­gjöldum eftir útgerð­ar­flokkum. Helsta vanda­mál við álagn­ingu veiði­gjalda sé skortur á nýlegum upp­lýs­ingum á afkomu útgerða. Vinna nefnd­ar­innar sýni að hún eigi í erf­ið­leikum með að fá góðar upp­lýs­ingar í nútíma til að vinna áætl­anir, þannig að gjöldin hald­ist í sam­hengi við afkomu grein­ar­innar bæði milli ára og milli mis­mun­andi útgerð­ar­flokka. „Við erum því að sækja með þessu frum­varpi heim­ildir til frek­ari gagna­öfl­unar í gegnum skatt­skýrslur þess­ara fyr­ir­tækja. Heim­ildir sem þessar hafa ekki legið fyrir og hefur vantað við þessa vinnu síð­ustu sex til sjö ár. Það er við­mið sem við þurfum að hafa til að geta stundað álagn­ingu veiði­gjalda,“ segir Jón og vísar til þess að þegar veiði­gjöld eru ákveðin þá liggja ekki fyrir nýj­ustu afkomu­tölur heldur.


Spurður um fram­hald máls­ins segir Jón að það muni fá sína umræðu í þing­inu en frum­varpið fer nú í 2. umræðu. „Það kemur í ljóst hvort þetta veðri nið­ur­staðan eða frek­ari breyt­ingar verði gerðar á mál­inu. En þessar breyt­ingar sem við gerum eru gerðar eftir ítar­lega yfir­legu,“ segir Jón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár