Capacent segir Eik hafa varla verið tækt til verðmats við skráningu

Fast­eigna­fé­lagið Eik var varla tækt til verð­mats við skrán­ingu þar sem í skrán­ing­ar­lýs­ingu félags­ins voru engar fjár­hags­upp­lýs­ingar um fast­eigna­fé­lagið Lands­festar, sem Eik yfir­tók á árinu 2014. Eik var samt sem áður skráð á markað í apríl 2015. Þetta er mat sér­fræð­inga Capacent sem unnið hafa skýrslu um fast­eigna­fé­lögin þrjú í Kaup­höll­inni. Greint er frá skýrsl­unni í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Snorri Jak­obs­son, ráð­gjafi og séfræð­ingur hjá Capacent, að sam­kvæmt lögum um verð­bréfa­við­skipti eigi að vera hægt að meta fram­tíð­ar­horfur félags í skrán­ing­ar­lýs­ingu þess áður en það sé skráð á markað. Hjá Eik hafi allar upp­lýs­ingar um eignir félags­ins verið til fyr­ir­myndar en vantað upp­lýs­ingar um stóran hluta rekst­urs­ins þar sem upp­lýs­ingar um Land­festar hafi vantað, en Land­festar eru um 40 pró­sent af eignum og tekjum Eikar á árinu 2015. Bókfært virði fjár­fest­inga­eigna Lands­festa í árs­lok 2014 var 22,7 millj­arðar króna og rekstr­ar­tekjur þess á árinu voru um 2,2 millj­arðar króna. Snorri segir mjög sér­stakt að birta bara for­tíð­ar­rekstur eins félags­ins þegar fram­tíð­ar­rekstur og verð­mæti félags­ins bygg­ist á rekstri tveggja félaga.

Gengi Eikar hefur lækkað frá skrán­ingu. Útboðs­gengi í útboði félags­ins var 6,8 krónur á hlut en hlutur í Eik selst nú á 6,3 krónur.

Arion banki beggja megin borðsins


Eik var ekki eina fast­eigna­fé­lagið sem skráð var á markað í apríl á þessu ári. Fast­eign­ar­fé­lagið Reitir var líka skráð þá. Í skýrslu Capacent segir að þáver­andi stærsti eig­andi Reita og Eika, Arion banki, hafi setið beggja vegna borðs­ins og ákvarðað útboðs­gengi. Bankinn hafi því verið bæði í hlut­verki fjár­festis og þjón­ustu­að­ila sem þætti vart eðli­legt í nágranna­löndum okkar. Slík vinnu­brögð seú til þess fallin að grafa undan trú­verð­ug­leika bæði útgef­anda og fyr­ir­tæk­is­ins sem selt er.

Af fast­eigna­fé­lög­unum þremur sem skráð eru í Kauphöll telur Capacent að Reginn, sem skráð var á markað 2012, sé metið lengst frá sann­virði sínu. Líklega sé verið að refsa félag­inu fyrir ónóga upp­lýs­inga­gjöf um eignir þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár