Viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs færa sig annað og fáir nýir koma

Við­skipta­vinir Íbúða­lána­sjóðs hafa greitt upp íbúða­lán að fjár­hæð um 9,2 millj­arðar króna á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2015. Á sama tíma­bili nema ný almenn útlán sjóðs­ins ein­ungis tæpum 1,5 millj­örðum. Það er um 600 millj­ónum minna en á sama tíma­bili 2014. Nýjum lán­tökum fer fækk­andi og ekk­ert lát virð­ist vera á að við­skipta­vinir end­ur­fjár­magni íbúða­lán sín hjá öðrum lána­stofn­unum.

Íbúða­lána­sjóður birti mán­að­ar­lega yfir­lits­skýrslu í dag. Þar kemur fram að í maí námu almenn útlán 178 millj­ónum sam­an­borið við 321 milljón í maí 2014. Ef litið er á fyrri mán­að­ar­skýrslur á þessu ári má sjá að fjár­hæð útlána til almennra íbúða­kaupa hefur ekki verið lægri en í maí­mán­uði.

Almenn útlán Íbúða­lána­sjóðs í hverjum mán­uði 2015

|

Create infographics


Íbúða­lána­sjóður er enn stærsti íbúð­ar­lán­veit­andi á Íslandi. En almenn útlán drag­ast hratt saman og upp­greiðslur voru aldrei hærri en á síð­asta ári, alls 26,3 millj­arðar króna. Það sem af er ári hafa við­skipta­vinir greitt upp um 9,2 millj­arða af lánum, þar af um 1,4 millj­arða króna í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár