Samband milli kynjajafnréttis og hagvaxtar: Hæfara fólk fæst til starfa

Líkurnar á að fá hæf­asta fólkið til að gegna til­teknum störfum aukast til muna með auknu fram­boði af starfs­fólki, svo sem þátt­töku kvenna á almennum vinnu­mark­aði. Áður fyrr höfðu konur síður eða enga mögu­leika á að gegna ýmsum stöðum og störfum í þjóð­fé­lag­inu. Það þýddi að minna fram­boð var af starfs­kröftum til starfa í stéttum sem áður þóttu karla­stéttir, eins og fram­kvæmda­stjórar, læknar og flug­menn. Grein­ing­ar­deild Arion banka fjallar í dag um hvernig kynja­jafn­rétti stuðlar að efna­hags­legum fram­förum og útskýrir meðal ann­ars með dæmi af vinnu­mark­aði, um starfs verð­bréfa­miðl­ara, sem lengi hefur verið hefð­bundið karla­starf.


„Með til­komu kvenna á markað fyrir verð­bréfa­miðl­ara eykst með­al­hæfni þeirra umtals­vert eða úr 40 í 45 í þessu dæmi. Með því að geta ráðið verð­bréfa­miðl­ara úr stærri hóp eykst sam­keppni og þar með líkur á því að hæf­asta fólkið. Slíkt eykur að öllu óbreyttu fram­leiðni sem eykur hag­vöxt. Svipað getur átt við margar aðrar stéttir og ekki síður störf sem áður þóttu ein­göngu henta konum en karlar hafa í auknum mæli sótt í, t.d. leik­skóla­kennslu,“ segir í pistli grein­ing­ar­deild­ar­innar. Urmull af rann­sóknum síð­ustu ár bendi til þess að kynja­jafn­rétti geti stuðlað að hag­vexti og efna­hags­legum fram­förum. „Orsaka­sam­hengið þarna á milli er reyndar ekki ful­ljóst, að því leyti að efna­hags­legar fram­farir geta m.a. fært völd nær konum og þannig aukið kynja­jafn­rétti. Flestir virð­ast í það minnsta sam­mála því að orsaka­sam­hengið virki í báðar áttir að ein­hverju leyti, en þó eru sumir sem hafa fundið mun sterk­ari áhrif kynja­jafn­réttis á hag­vöxt heldur en hið gagn­stæða.“ Eft­ir­far­andi mynd er birt sem sýnir tengsl lands­fram­leiðslu á mann og kynja­jafn­rétti.



„Svo virð­ist sem kynja­jafn­rétti á Íslandi sé með því mesta sem ger­ist í heim­inum. Það er líka svo að miklar efna­hags­legar fram­farir hafa fylgt auknu kynja­jafn­rétti síðan í byrjun 20. aldar. Þó að margt komi þarna til hefur atvinnu­þát­taka kvenna eflaust haft mikið að segja um það hve mik­ill hag­vöxtur hefur verið sl. 100 ár eða svo. Atvinnu­þát­taka kvenna jókst mjög á síð­ustu öld og var undir lok hennar nán­ast til jafns við atvinnu­þát­töku karla.“


Í lok grein­ar­innar segja sér­fræð­ingar grein­ing­ar­deild­ar­innar það vera rétt að taka fram að þeir eigi ekki svör á reiðum höndum um hvernig mark­miðum um jan­frétti skuli náð að fullu. „Það er t.d. ekki sjálf­gefið að boð og bönn geti stutt við jafn­rétti í hvers kyns mynd sem er. Engu að síður virð­ast vera sterk hag­fræði­leg rök fyrir því að standa þurfi vörð um kynja­jafn­rétti. Raunar er hægt að yfir­færa þau rök á að hvers kyns mis­rétti og ójöfn tæki­færi á grund­velli ann­ars en hæfi­leika ein­stak­linga sé skað­legt efna­hags­líf­inu. Það er eins með mannauð og önn­nur verð­mæti – það er öllum fyrir bestu að þau séu nýtt á sem hag­kvæm­astan og skyn­samastan hátt.“


Pistill grein­ing­ar­deildar Arion banka um kynja­jafn­rétti og efna­hags­legar fram­farir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár