Jarðskjálftaskelfirinn uppfærður: Sýnir allar jarðhræringar á Íslandi

Jarð­skjálfta­for­ritið Skelfir, sem íslenska fyr­ir­tækið Reon Tech hefur haldið úti allt frá árinu 2011, hefur fengið upp­lyft­ingu. Skelfir er tengdur jarð­skjálfta­vakt Veð­ur­stof­unnar og sýnir alla jarð­skjálfta und­an­farnar vikur. Eftir nýlega upp­færslu er meðal ann­ars hægt að sjá síð­ustu þús­und jarð­skjálfta mynd­rænt, velja tíma­bil og horfa á í sér­stökum jarð­skjálfta­spil­ara.

Elvar Örn Þormar, fram­kvæmda­stjóri og stofn­andi Reon Tech, segir Skelfi lengi hafa verið skemmti­lega hlið­ar­af­urð hjá fyr­ir­tæk­inu. Fjöl­margir heim­sæki síð­una, sér­stak­lega þegar jarð­hrær­ingar eiga sér stað og þús­undir heim­sækja síð­una þá dag­lega. Stefnt er að því að upp­færa for­ritið enn frekar og bæta meðal ann­ars við ítar­legri töl­fræði­þáttum.


Síðustu vikur hefur nokkur aukn­ing orðið á jarð­skjálfta­virkni á Reykja­nesskag­anum og nágrenni hans. Vís­bend­ingar eru um óstöð­ug­leika í jarð­skorp­unni sem geta verið und­an­fari jarð­skjálfta. Almanna­varnir sendi frá sér til­kynn­ingu vegna þessa fyrir helgi og hvetja fólk til að kynna sér rétt við­brögð við jarð­skjálftum. Þessar jarð­hrær­ingar sjást vel í Skelfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár