Sæstrengur kallar ekki á umfangsmiklar virkjanaframkvæmdir

Umfangs­miklar virkj­ana­fram­kvæmdir verða ekki nauð­syn­legar ef leggja á raf­orku­sæ­streng frá Íslandi til Bret­lands, sam­kvæmt sviðs­mynd Lands­virkj­unar á orku­öflun fyrir þús­und MW sæstreng. Í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag segir Óli Grétar Blöndal Sveins­son, fram­kvæmda­stjóri þró­un­ar­sviðs Lands­virkj­unar, að ekki sé rétt að reisa þurfi jafn­vel sem nemur frá einni til tveggja Kára­hnjúka­virkj­ana til þess að afla orku fyrir raf­orku­sæ­streng til Bret­lands. Í grein­inni segir hann jafn­framt að margt bendi til að um arð­samt verk­efni geti verið að ræða sem muni auka orku­ör­yggi á Íslandi og gera Íslend­ingum kleift að nýta betur auð­lindir sínar. „Hins vegar eru margir óvissu­þættir til staðar og ekki hægt á þess­ari stundu að taka ákvörðun um hvort eða hvenær sæstrengur verði lagður frá Íslandi. Lands­virkjun hefur lagt til að á næstu 2-3 árum verði gerð ítar­leg grein­ing á kostum og göllum þess að tengja Ísland við raf­orku­kerfi Evrópu,“ segir hann.

Bent er á reynslu Norð­manna, sem nýlega hafa lagt sæstrengi til Hollands og Dan­merkur auk þess að hafa tvo aðra sæstrengi í bígerð, til Bret­lands og Þýska­lands. „Þetta hafa þeir gert án þess að leggja í nýjar stór­felldar virkj­ana­fram­kvæmdir.“


Lands­virkjun gerir ráð fyrir að sæstrengur þyrfti árlega um 5,0 TWst af raf­orku. Til sam­an­burðar er orku­geta Kára­hnjúka­virkj­unar 5,0 TWst og Hell­is­heið­ar­virkj­unar 2,5 TWst. „Sérkenni sæstrengs fyrir Ísland er að hann veitir aðgang að nýjum, stórum og sveigj­an­legum mark­aði fyrir útflutn­ing á raf­magni sem þegar er til, en er nú læst inni vegna ein­angr­unar íslenska mark­að­ar­ins. Með bættri nýt­ingu kerf­is­ins, án nýrra virkj­ana, væri hægt að fá um 2,0 TWst, eða 40% af orku­þörf sæstrengs. Vindorka og smærri virkj­un­ar­kostir gætu gefið um 1,5 TWst eða 30%. Nýjar jarð­varma- og vatns­afls­virkj­anir úr nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar gætu gefið um 1,5 TWst eða 30%. Því má segja að um 70% orku­öfl­unar væru óhefð­bundin fyrir núver­andi kerfi en 30% hefð­bundin orku­öflun með nýjum jarð­varma- og vatns­afls­virkj­unum,“ segir í grein Óla Grétars sem vísar í sviðs­mynd Lands­virkj­unar.


„Til að tryggja orku­ör­yggi á Íslandi mið­ast hönnun raf­orku­kerf­is­ins við að hægt sé að tryggja orku­af­hend­ingu í þurrum og köldum árum. Af þessum sökum renna að jafn­aði um 10% af vatni ónotuð fram­hjá virkj­unum til sjávar í fullseldu kerfi og fer fram­hjá­rennsli vax­andi með auk­inni hlýnun jarðar. Að auki taka við­skipta­vinir Lands­virkj­unar ekki alla orku sem Lands­virkjun hefur skuld­bundið sig til að afhenda og er magnið breyti­legt eftir árum, en skilar sér í um 2-3% auknu fram­hjá­rennsli. Sömu­leiðis er almennt til ein­hver óseld orka í kerf­inu frá nýbyggðum virkj­unum sem eftir á að semja um sölu á. Sæstrengur opnar því mögu­leika á að bæta veru­lega nýt­ingu íslenska raf­orku­kerf­is­ins. Rúmlega helm­ingur af 2,0 TWst er þegar í hendi, eða jafn­gildi rúm­lega einnar Blöndu­virkj­unar. Með því að stækka núver­andi vatns­afls­virkj­anir til að tryggja sveigj­an­lega afhend­ingu um sæstreng má nýta vatn sem rennur fram­hjá virkj­unum. Að auki yrði nýt­ing vatns í fram­tíð­ar­vatns­afls­virkj­unum betri.


Vegna þess hve raf­orku­verð fyrir end­ur­nýj­an­lega orku er hátt í Bret­landi myndi sæstrengur gera Íslend­ingum kleift að nýta dýr­ari orku­kosti en við gerum í dag. Þetta eru orku­kostir eins og vind­orka og smærri og dýr­ari virkj­un­ar­kostir í bæði jarð­varma og vatns­afli. Vindorka getur þar spilað stórt hlut­verk, en einnig er lík­legt að fram­þróun verði í smærri vatns­afls­virkj­unum, nýt­ingu jarð­varma við lægra hita­stig og borun niður á meira dýpi í háhita­kerfum. Með sæstreng og stækk­unum á núver­andi vatns­afls­virkj­unum er tæki­færi til að hefja kröft­ugri nýt­ingu á vind­orku en ella.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár