Hafa hætt við að lenda í Keflavík í 33 skipti frá 2005: Eitt skipti af 35 þúsund í fyrra

Á síð­asta ári neydd­ist ein flug­vél, sem ætl­aði að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli, til að lenda ann­ars staðar vegna ófyr­ir­sjá­an­legra aðstæðna, eftir að und­ir­bún­ingur aðflugs var haf­inn. Flug­vélin lenti á Akureyri. Árið 2013 neydd­ust tvær vélar á leið til Kefla­vík­ur­flug­vallar að lenda ann­ars staðar og lentu þær á Egils­stöðum og Akureyri. Á fyrstu fjórum mán­uðum þessa árs hafa tvær vélar á leið til Kefla­víkur lent í Reykja­vík, ein á Egils­stöðum og ein á Akureyri. Ástæðan fyrir breyttum lend­ing­ar­stað er oft­ast veður.

Þetta er meðal þess sem lesa má úr svari inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Helga Hrafni Gunn­ars­syni um lend­ingar flug­véla á Kefla­vík­ur­flug­velli og vara­flug­völlum. Hann spyr meðal ann­ars hversu margar flug­vélar sem áttu að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli hafi neyðst til að lenda á Reykja­vík­ur­flug­velli, Akur­eyra­flug­velli og Egils­staða­flug­velli. Tölur voru fengnar frá Icelandair og ná til áranna 2005 til 2015. Upp­lýs­ing­arnar miða allar við flug þar sem und­ir­bún­ingur aðflugs var haf­inn en flug­vélin þurfti frá að hverfa, oft­ast vegna veð­urs.


Frá árinu 2005 til loka apríl 2015 hafa flug­vélar á leið til Kefla­víkur lent á ein­hverjum af völl­unum þremur í sam­tals 33 skipti, þar af tíu sinnum í Reykja­vík, 14 sinnum á Egils­stöðum og níu sinnum á Akureyri. Af 33 skiptum voru tíu þeirra árið 2008, þar af sex lend­ingar á Egils­stöðum, en bent er á það ár hafi veð­ur­far verið nokkuð erfitt. Sama megi segja um síð­asta vetur, en fjórum sinnum hefur verið hætt við aðflug og lent ann­ars staðar en í Keflavík það sem af er ári 2015. Þá voru þrjár flug­vélar sem breyttu lend­ing­ar­á­ætlun frá Kefla­vík­ur­flug­velli árið 2010 en það ár olli eld­gosið í Eyja­fjalla­jökli erf­ið­leikum í flugi. Þrjár vélar lentu þá í Reykja­vík, þrjár á Akureyri og ein á Egils­stöðum.


Flug­vélar sem neyð­ast vegna ófyr­ir­séða atburða að breyta um lend­ing­ar­stað eftir að aðflugs-und­ir­bún­ingur er haf­inn mynda brot af öllum þeim lend­ingum sem verða á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í svari inn­an­rík­is­ráð­herra er birt tafla yfir árlegan fjölda „hreyf­inga“ flug­véla á Kefla­vík­ur­flug­velli, það eru bæði flug­tak og lend­ing.


Til dæmis voru hreyf­ingar á árinu 2014 um 71 þús­und tals­ins. Ef gert er ráð fyrir að helm­ingur hafi verið lend­ingar, eða um 35.500 lend­ingar, þá þurfti að lenda ann­ars staðar í 0,0029 pró­sent til­vika. Árið 2008, þegar flestar flug­vélar eða alls tíu tals­ins breyttu um flug­völl eftir að und­ir­bún­ingur að lend­ingu var haf­inn, var sama hlut­fall um 0,047 pró­sent. Það eru tíu skipti af alls um 21.500 lend­ingum í Keflavík það ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár