Utanlandsferðir Hönnu Birnu, Ólafar og Eyglóar hafa kostað 23 milljónir

Utan­lands­ferðir inn­an­rík­is­ráð­herra, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og starfs­liðs hafa sam­tals kostað um 22,6 millj­ónir á kjör­tíma­bil­inu, frá því í maí 2013 til maíloka 2015. Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur á tíma­bil­inu farið í tólf utan­lands­ferðir ásamt starfs­liði og nemur kostn­að­ur­inn um 9,8 millj­ónum. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrrum inn­an­rík­is­ráð­herra, fór í ell­efu utan­lands­ferðir í ráð­herra­tíð sinni og Ólöf Nordal, núver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra hefur farið tvær ferðir. Kostn­aður vegna ferða þeirra tveggja nemur sam­tals um 12,7 millj­ónum á kjör­tíma­bil­inu.

Svör þess­ara ráð­herra við fyr­ir­spurnum Katrínar Júl­í­us­dóttur um heild­ar­kostnað við utan­lands­ferðir það sem af er kjör­tíma­bil­inu voru birt í dag. Dýrasta ferðin var átta daga ferð Ólafar Nordal auk aðstoð­ar­manns til Sendai í Japan vegna alþjóð­legrar ham­fara­ráð­stefnu. Tekið er fram að ferðin var farin að beiðni for­sæt­is­ráð­herra og kost­aði alls tæp­lega 2,2 millj­ónir króna.


Dýrasta ferð Eyglóar auk aðstoð­ar­manns, sér­fræð­ings og deild­ar­stjóra var vegna kvenna­nefnd­ar­fundar Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York borg í mars 2014. Alls nam kostn­aður vegna ferð­ar­innar um 2,2 millj­ónum króna. Í mars á þessu ári sótti ráð­herr­ann sama fund í New York borg og kost­aði ferðin þá sam­tals um 1,8 millj­ónir króna en aðstoð­ar­maður var ekki með ráð­herr­anum, sér­fræð­ingnum og deild­ar­stjór­anum í það skiptið.


Þá hefur Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra farið í fimm utan­lands­ferðir á kjör­tíma­bil­inu. Kostn­aður vegna ferða ráð­herr­ans er um 1,2 millj­ónir króna en að með­töldu starfs­liði nemur kostn­aður alls um 4 millj­ónum króna.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár