Launavísitala Hagstofu Íslands hefur hækkað um 5,3 prósent á síðastliðnum tólf mánuðum á sama tíma og kaupmáttur launa hefur aukist um 3,6 prósent. Vísitala kaupmáttar hefur þó sjaldan staðið hærra en í maí 2015.
Vísitala kaupmáttar launa frá janúar 2015 til maí 2015
|
Create infographics
Milli apríl og maí hækkaði vísitala launa um 0,5 prósent, samkvæmt frétt Hagstofunnar, en vísitala kaupmáttar jókst um 0,2 prósent. Vísitala launa miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og byggir á gögnum úr launarannsókn Hagstofunnar.
Breyting mánaðarlegrar launavísitölu sl. 12 mánuði
|
Create infographics
Vísitala kaupmáttar launa stendur í 121,1 stigi og hefur sjaldan verið hærri. Hækkun launavísitölunnar og lág verðbólga í sögulegum samanburði hafa leitt til vaxandi kaupmáttar, mælt með vísitölunni. Hér að neðan má sjá breytingu á kaupmætti launa síðustu tólf mánuði.
Breyting á kaupmætti launa sl. 12 mánuði
|
Create infographics
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir