„Óþægilegt þegar maður heyrði ekki í konunni í Palestínu í nokkra daga“

Birgir Örn Stein­ars­son, eða Biggi í Maus eins og flestir þekkja hann, flutt­ist búferlum ásamt fjöl­skyldu sinni til Kaup­manna­hafnar síð­asta sumar. Þar sett­ust Biggi og eig­in­kona hans Kolbrún Magnea Krist­jáns­dótttir á skóla­bekk, þar sem hann nemur sál­fræði og hún mann­fræði.

Lítið hefur heyrst frá Bigga frá því að hann flutti af landi brott skömmu eftir að kvik­myndin Von­ar­stræti var frum­sýnd. Vel­gengni Von­ar­strætis er flestum kunn, en Biggi skrif­aði hand­ritið að kvik­mynd­inni ásamt leik­stjór­anum Baldvini Z.

Kjarninn hitti Bigga í Enghave garð­inum í Kaup­manna­höfn á dög­unum og tók hann spjalli. Þar ræðir hann opin­skátt um list­ina, lífið og ást­ina, en eig­in­kona hans hefur dvalist í hart­nær þrjá mán­uði í Palest­ínu við rann­sókn­ar­störf þar sem hún hefur kom­ist í hann krapp­ann og verið í lífs­hættu­legum aðstæðum. Á meðan hafa Biggi og dóttir hans, Kolbrá Kría, beðið óþreyju­full.

Þá ræðir Biggi fleiri kvik­mynda­hand­rit sem eru í bígerð, nýja plötu sem er vænt­an­leg úr smiðju hans innan skamms undir nafn­inu Bigital, sem hann vann nær ein­vörð­ungu sjálfur að öllu leyti, sem og „ástandið“ á Íslandi séð úr fjar­lægð.

Heyrn er sögu rík­ari. Hlustaðu á við­talið, og nýtt lag með Bigital, í spil­ar­anum hér að ofan.

[caption id="attachment_32117" align="align­right" width="840"] Feðginin Kolbrá Kría Birg­is­dóttir og Birgir Örn Stein­ars­son. Mynd: Þor­bergur Taró[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár