Ferðamenn í maí eyddu fimm milljörðum í mat, drykk og ferðir

Erlendir ferða­menn á Íslandi greiddu alls 13,1 millj­arð króna með greiðslu­kortum í maí. Það er 47 pró­sent meira en þeir greiddu með kort­unum í maí 2014. Erlendir ferða­menn eru ekki aðeins fleiri heldur eyðir hver þeirra að með­al­tali 8 pró­sent meira en í sama mán­uði í fyrra, sam­kvæmt gögnum Hag­stof­unnar um greiðslu­korta­veltu erlendra korta og Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar á Bifröst rýnir í.

Mest af fénu fer til inn­lendra ferða­skipu­leggj­enda, eða ríf­lega þrír millj­arðar króna í maí. Korta­velta vegna gist­ingar nam 2,6 millj­örðum króna og jókst um 44 pró­sent milli ára. Kortaverta ferða­manna í íslenskum versl­unum jókst um 14 pró­sent milli maí 2014 og 2015, en alls eyddu ferða­menn­irnir 1,6 millj­arði króna í versl­unum. Þær versl­anir sem eru í mestri sókn meðal erlendra ferða­manna eru gjafa- og minja­gripa­versl­anir, sam­kvæmt Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar.

320 milljónir í skyndibita


Ef rýnt er í 1,5 millj­arða króna neyslu ferða­mann­anna á veit­inga­húsum þá sést að um 318 millj­ónir króna fara í skyndi­bita. Þá keyptu ferða­menn­irnir drykki á börum og krám fyrir 156 millj­ónir króna í maí.

Það eru Rússar sem eyða mestu í veit­ingar en hver Rússi varði þrefalt meira á börum og krám en næsta þjóð, Kanada­menn, og fimm­falt meira en með­al­ferða­mað­ur­inn.

Hér að neðan má sjá hvernig kredit­korta­velta ferða­manna skipt­ist í maí eftir útgjalda­liðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár