Konur og Alþingi: Framboðin, kosningin og þátttakan í tölum

Með stjórn­ar­skrár­breyt­ingu sem tók gildi 19. júní 1915 var kosn­inga­réttur til Alþingis rýmk­aður. Konur og hjú fengu kosn­inga­rétt en þó með þeim tak­mörk­unum að aðeins þau sem náð höfðu 40 ára aldri höfðu kosn­inga­rétt. Ald­ur­svið­mið skyldu svo lækka um eitt ár á hverju ári þar til komið væri að 25 ára tak­mark­inu eftir 15 ár, sem þá var kosn­inga-aldur karla. Þegar rík­is­borg­ara­rétt­indi Íslend­inga og Dana voru jöfnuð árið 1918 voru ald­urs­tak­mark­anir vegna kosn­ing­ar­réttar kvenna og hjúa felldar niður, frá og með 18. maí 1920. Það ár fengu konur því fyllsta jafn­rétti á við karla í kosn­ingum.

Í nýrri skýrslu Hagstofu Íslands, Konur og kosn­ingar í 100 ár, er farið yfir sögu kosn­inga á Íslandi og litið til rétt­inda og þátt­töku karla og kvenna. Hundrað ár eru frá því konur fengu rétt­indi til þess að kjósa til Alþingis. Umfjöllun þessi og tölu­legar upp­lýs­ingar byggja á skýrslu Hag­stof­unnar.

Konur á Alþingi


Fyrstu lands­kjörs­kosn­ing­arnar eftir að konur fengu kosn­inga­rétt voru í ágúst 1916. Við kosn­ing­arnar voru 52 fram­bjóð­endur og þar af ein kona, Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir, sem skip­aði 4. sæti á lands­lista Heima­stjórn­ar­manna. Vegna breyt­inga sem kjós­endur gerðu á röð list­ans fór hún niður í 5. sætið. Flokk­ur­inn fékk þrjá menn kjörna, efstur á list­anum var Hannes Hafstein. Hann lét af þing­mennsku árið 1918, fjórði maður á lista sett­ist á þing í hans stað og hefði það verið Bríet ef hún hefði ekki færst til í kosn­ing­unum.

Árið 1908 til 1919 sátu 40 þing­menn á Alþingi Íslend­inga, 34 voru kjör­dæma­kosnir en sex þing­menn fengu sæti með lands­kjörs­kosn­ingum. Þing­mönnum fjölg­aði í 42 árið 1920, í 49 árið 1934, í 52 árið 1942, síðan í 60 árið 1959 og hafa verið 63 frá árinu 1987.

Fjöldi kjör­inna þing­manna eftir kyni frá 1916 til 2013

|

Create infographics

Árið 1922 hlaut Ingi­björg H. Bjarna­dóttir kosn­ingu af sér­stökum kvenna­lista sem bauð fram í lands­kjörs­kosn­ingum. Hún var fyrsta konan til að taka þing­sæti. Í kosn­ing­unum voru 28 fram­bjóð­endur, þar af fjórar konur. Guðrún Lár­us­dóttir var önnur konan sem var kjörin á þing. Hún var einnig lands­kjörin og sat á þingi frá 1930 til 1938 fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Næstu tutt­ugu árin sat ein og ein kona í senn á þingi eða engin allt til árs­ins 1949 þegar tvær konur voru kjörnar í fyrsta sinn. Önnur tutt­ugu ár liðu þar til konum fjölg­aði í þrjár við kosn­ing­arnar 1971, eða 5 pró­sent þing­manna. Í kosn­ing­unum 1983 bauð Kvenna­list­inn fram og hlut­fall kvenna á þingi varð 15 pró­sent. Konur hafa verið flestar á þingi árið 2009, þegar 27 konur fengu kosn­ingu eða 42,9 pró­sent þing­manna. Í síð­ustu kosn­ingum árið 2013 fækk­aði konum um tvær og hlut­fallið fór í 39,7 pró­sent.

Yfirlit um fram­bjóð­endur í alþing­is­kosn­ingum eftir kyni byggir á kosn­inga­skýrslum og nær yfir tíma­bilið frá 1959 til 2013. Af kosn­inga­skýrslum má ráða að þátt­taka kvenna í fram­boðum fór hægt af stað. Í októ­ber 1959 voru 438 í fram­boði, þar af voru 36 konur eða 8,2 pró­sent fram­bjóð­enda. Um tutt­ugu árum síðar, árið 1978, voru konur fjórð­ungur fram­bjóð­enda og rúm­lega þriðj­ungur árið 1983 þegar Kvenna­list­inn bauð fyrst fram. Í næstu tveimur kosn­ing­unum var hlut­fallið tæp 46 pró­sent. Það var hæst árið 1995, eða 50, 4 pró­sent fram­bjóð­enda, en eftir það hefur hlut­fallið verið á bil­inu 40 til 42 pró­sent nema árið 2007, þegar konur skip­uðu 47,2 pró­sent fram­bjóð­enda.

Konur og kosningaþátttaka


Þátttaka kvenna í kosn­ingum á Íslandi var lengst af minni en karla en hefur smám saman og verið ívið meiri en þátt­taka karla síð­ustu ára­tug­ina. Í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum árið 2013 var kosn­inga­þátt­taka kvenna 81,9 pró­sent en karla 81,1 pró­sent. Um 100 árum eftir að konur fengu kosn­inga­rétt og kjör­gengi til Alþingis er staðan sú að konu í dag kjósa til jafns við karla, þær eru rúm­lega fjórar af hverjum tíu fram­bjóð­endum og fjórar af hverjum tíu kjörnum þing­mönnum sé miðað við síð­ustu alþing­is­kosn­ingar árið 2013.


Með rýmkun kosn­inga­réttar fyrir hund­rað árum síðar tvö­fald­að­ist fjöldi kjós­enda á kjör­skrá fyrir kosn­ingar kjör­dæmis­kjör­inna þing­manna í októ­ber árið 1916, sam­an­borið við kosn­ing­arnar árið 1914. Alls voru 28.529 á kjör­skrá eða 31,7 pró­sent lands­manna, 16.330 karlar og 12.199 konur. Þátttaka kvenna í kosn­ing­unum 1916, þeim fyrstu eftir fengin kosn­inga­rétt, var þátt­taka þeirra 30,2 pró­sent. Árið 1922 voru fyrstu kosn­ing­arnar haldnar þar sem kynin sátu við sama borð hvað kjör­gengi og kosn­inga­rétt varð­aði. Alls voru 43.932 kjós­endur á kjör­skrá eða 45,2 pró­sent lands­manna. Þátttaka kvenna var mun meiri en áður, eða 68,4 pró­sent. Þátttaka karla var 83,7 pró­sent.

Í kosn­ing­unum 1995 var þátt­taka kvenna í fyrsta sinn meiri en karla. Hún hefur verið það síðan en mun­ur­inn hefur verið um eða undir einu pró­sentu­stigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár