Robert Z. Aliber vill hefta fjármagnsflæði: Gjaldeyrismarkaðurinn er fársjúkur

Banda­ríski hag­fræði­pró­fess­or­inn Robert Z. Aliber telur að ríki heims­ins, sér­stak­lega smærri þjóðir, verði að hand­stýra skamm­tíma­hreyf­ingum fjár­magns inn og út úr land­inu. Á fyr­ir­lestri í Háskóla Íslands í dag sagði hann það flæði gjald­eyris sem ekki teng­ist vöru- og þjón­ustu­við­skiptum skað­legt og að seðla­bankar og stjórn­völd verði að bregð­ast við af mun meiri ákafa en gert hefur verið til þessa. Aliber vildi þó ekki kalla þessar til­lögur sínar „fjár­magns­höft“, þótt til­lögur hans feli raunar í sér að hefta flæði fjár­magns.

„Eitt sinn þegar ég var að spila tennis við fyrrum pró­fessor minn, James Tobin, þá sagði hann við mig: Robert, það er ekki gaman þegar skattur er nefndur í höf­uðið á þér,“ sagði Aliber á fund­inum og vís­aði til Tobin-skatts­ins svo­kall­aða, nefndur í höf­uðið á James Tobin, Nóbels­verð­launa­hafa í hag­fræði. Aliber vill því ekki að hug­myndir sínar um breytt gjald­miðla­kerfi séu kenndar við hann né fjár­magns­höft.


Aliber hefur nokkrum sinnum áður heim­sótt Ísland og haldið fyr­ir­lestra í Háskóla Íslands. Hann vakti mikla athygli þegar hann kom til lands­ins í maí 2008 og spáði efna­hag­skrísu. Fyr­ir­lest­ur­inn í dag var á vegum hag­fræði­deildar HÍ og Samtaka spari­fjár­eig­enda. Yfir­skrift fund­ar­ins var „Evra eða króna: Hvað hefur fjár­málakreppan kennt okkur um geng­is­fyr­ir­komu­lag?“. Aliber ræddi þó lítið sem ekk­ert um kosti og galla evru og krónu en reif­aði hug­myndir og kenn­ingar sínar um gjald­eyr­is­mark­að­inn og fyr­ir­komu­lag á honum í dag, sem hann telur fár­sjúkt.

Gjaldmiðlastríð stendur yfir

Aliber sagði að í dag standi yfir gjald­miðla­stríð og þótt hug­takið um gjald­miðla­stríð hafi fyrst komið fram á 4. ára­tug síð­ustu aldar þá sé það ann­ars eðlis í dag. Síð­ast­liðin tvö og hálft ár hafi þjóðir heims­ins, upp­haf­lega Japanir, veikt gjald­miðla sína mark­visst í þeim til­gangi að fá meira fyrir útflutn­ing sinn. Þennan leik hafi aðrar þjóðir leikið eftir, jafn­vel þótt þau hafi fyrir skilað afgangi af lands­fram­leiðslu. Veiking eins gjald­mið­ils þýðir styrk­ing gjald­mið­ils ann­arrar þjóðar, sem fær þá minna fyrir sinn útflutn­ing. Til þessa hafi það verið Banda­ríkin sem sjá gjald­miðil sinn styrkj­ast og styrkj­ast. „En við ætlum ekki að vera box­púði fyrir önnur ríki,“ sagði Aliber.


Þá fjall­aði Aliber um hvernig gengi gjald­mið­ils hvers ríkis er mik­il­væg­asta efna­hags­stærð hans og ræður öllu um fram­gang efna­hags­lífs lands­ins. Vanda­málið sé hins vegar að þessi eina stærð, það er gengi gjald­mið­ils­ins, sinnir tveimur mörk­uðum, það eru mark­aður með vörur og þjón­ustu ann­ars vegar og fjár­mála­mark­aður hins vegar. Fjár­mála­mark­aður hafi tekið yfir­hönd­ina á síð­ustu ára­tugum, allt snú­ist um hann og veldur skað­legu skamm­tíma­flæði fjár­magns. Gjald­eyr­is­mark­að­ur­inn í dag er því skað­væn­legur, virkar ekki sem skyldi, og þjónar ekki þeim sem sýsla með vörur og þjón­ustu heldur ein­göngu þeim sem starfa á fjár­mála­mark­aði, sagði Aliber.


Þetta vill hag­fræði­pró­fess­or­inn leysa með því að færa seðla­bönkum nýtt tæki til að vinna með. Tækið, eða aðferð­ina, kallar hann á ensku „macro-credential requirements“ og við frek­ari útskýr­ingar hans á fund­inum mátti heyra að Aliber vill að seðla­bankar stýri flæði skamm­tíma­fjár­magns. Fjár­magns­flæði sem ein­ungis er hugsað til skamms tíma geti hæg­lega verið skað­legt og sögu­lega hafi sveiflur sem það veldur leitt til fast­eigna- og verð­bréfa­bólu­mynd­unar. Hann telur að seðla­bankar eigi áfram að nota stýri­vexti til að hafa áhrif á inn­lent efna­hags­líf og vaxta­kjör í land­inu en slíta þurfi á tengslin við fjár­magns­flæði. Það getur nefni­lega verið afar skað­leg líkt og gerð­ist á Íslandi þegar vaxta­muna­við­skipti voru mikið stunduð með íslensku krón­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár