Harðvítugar deilur um sjúkrahótel Sinnum

Þol­in­mæði Land­spít­al­ans gagn­vart sjúkra­hót­eli Sinnum ehf. í Ármúla er á þrotum. Ítrek­uðum athuga­semdum spít­al­ans og eft­ir­lits­að­ila um rekstur hót­els­ins hefur ekki verið sinnt af Sjúkra­trygg­ingum, sem telja spít­al­ann beita til­efn­is­lausum athuga­semdum gegn rekstr­ar­að­ila sjúkra­hót­els­ins, Sinnum ehf.

Greint er frá deilum Land­spít­al­ans og Sjúkra­trygg­inga vegna Sinnum ehf. á frétta­vef RÚV en málið verður til umfjöll­unar í Kast­ljós­inu í kvöld. Fyr­ir­tækið hefur rekið sjúkra­hótel frá því árið 2011 en rekst­ur­inn var áður í höndum Land­spít­al­ans. Sjúkra­trygg­ingar Íslands buðu út rekst­ur­inn í sam­vinnu við Land­spít­al­ann. Sinnum átti þar lægsta boð upp á 90 millj­ónir króna á ári.


Kastljós hefur undir höndum gögn sem sýna nær stans­lausar deilur milli Sjúkra­trygg­inga Íslands og Land­spít­al­ans. For­stjóri Sjúkra­trygg­inga telur samn­inga við Sinnum hafa reynst vel og að Land­spít­al­inn hafi „beitt sér fyrir því að koma með til­efn­is­lausar athuga­semdir í tengslum við samn­ing­inn við Sinnum“.


Í við­tali við Kastljós í kvöld sakar for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands. Land­spít­al­ann um að stýra vinnu eft­ir­lits­að­ila, sem einnig hefur gert athuga­semdir við rekstur Sinnum ehf. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur hefur ítrekað gert athuga­semdir við aðbúnað og leyf­is­mál á sjúkra­hót­el­inu und­an­farin ár. Það hafa starfs­menn, sjúk­lingar og aðstand­endur einnig gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár