Aukin þorskveiði eykur hagvöxt

Aukin þorsk­veiði mun skila tæp­lega 10 pró­sentum meiri útflutn­ings­verð­mætum á árs­grund­velli en á síð­asta fisk­veiði­ári. Hag­vaxt­ar­á­hrif þessu verða um 0,4 pró­sent, miðað við breytta veiði­ráð­gjöf Haf­rann­sókn­ar­stofnun fyrir næsta fisk­veiðiár sem hefst þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Stofn­unin leggur til veru­lega aukna veiði á þorski og fer ráð­gjöfin úr 216 þús­und tonnum í 239 þús­und tonn. Auk þess má búast við að hag­vaxt­ar­á­hrif loðnu­ver­tíð­ar­innar, sem var mun betri en í fyrra, verði um 0,8 pró­sent.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans fjallar um ákvörðun Hafró í dag og mögu­leg áhrif á hag­vöxt og útflutn­ings­verð­mæti þorskafl­ans. „Á síð­asta ári námu þorsk­veiðar íslenskra skipa um 236 þús­und tonnum en þar af voru 221 þús­und tonn veidd á Íslands­miðum en tæp 15 þús­und tonn á öðrum svæðum. Útflutt magn af þorski reynd­ist hins vegar 118 þús­und tonn eða um helm­ingi lægra en mun­ur­inn þarna á milli liggur í vinnslu á veiddum afla,“ segir í Hagsjá bank­ans. Útflutt magn af þorski skap­aði þannig tæp­lega 90 millj­arða króna útflutn­ings­tekjur og gera má ráð fyrir að 23 þús­und tonna aukn­ing á kvóta skili tæp­lega 10 pró­sentum meira í tekjur, eða 8,6 millj­örðum króna.


„Að öðru óbreyttu má gera ráð fyrir tölu­verðum hag­vaxt­ar­á­hrifum af fisk­veiðum á þessu ári en til við­bótar auknum þorsk­veiðum var loðnu­ver­tíðin mun betri en í fyrra og má ætla að hag­vaxt­ar­á­hrif loðnu­ver­tíð­ar­innar nemi um 0,8%. Öfugt við þorsk­stofn­inn hefur loðnu­stofn­inn frekar leitað niður á við á síð­ustu árum,“ segir enn­fremur. „Þorsk­ur­inn og loðnan eru þeir stofnar sem hafa skýrt mesta breyti­leik­ann í útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða síð­ustu 10 ár. Á allra síð­ustu árum hefur útflutn­ings­verð­mæti loðnu skýrt stóran hluta af breyti­leik­anum í heild­ar­út­flutn­ings­verð­mæt­inu. Áhrifin voru jákvæð árin 2010-2013 en síðan komu til veru­lega nei­kvæð áhrif árið 2014 vegna lít­illa veiða. Á síð­ustu árum hafa áhrifin verið tölu­vert minni hvað útflutn­ing á þorski snertir. Það helg­ast bæði af því að hlut­falls­legar breyt­ingar í veiðum eru tölu­vert minni en í loðnu en einnig eru öfgarnar í verð­breyt­ingum tölu­vert minni. Áhrifin af þorski hafa þó verið lít­il­lega jákvæð öll árin frá 2011 sem helg­ast bæði af hækkun verðs en einnig meiri veiðum.“

Stofninn ekki sterkari um áratuga skeið

Haf­rann­sókn­ar­stofnun kynnti þann 11. júní síð­ast­lið­inn nýja skýrslu um ástand nytja­stofna á Íslands­miðum. Í skýrsl­unni er lagt til að þorsk­kvóti verði auk­inn um tíu pró­sent milli ára, í 239 þús­und tonn. Er þetta hæsta afla­mark þorsks frá því um alda­mót og nær tvö­falt meiri en árið 2008. Haft var eftir Jóhanni Sig­ur­jóns­syni, for­stjóra Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar, í fréttum RÚV að stofnin hafi ekki verið sterk­ari um margra ára­tuga skeið og sé það afrakstur skyn­sam­legrar fisk­veiði­stefnu. „Með sam­drætti í sókn þá hefur tek­ist að breyta ald­urs­sam­setn­ingu stofns­ins, hann er orð­inn allur sterk­ari og lík­legri til að geta af sér sterka árganga í fram­tíð­inni. Sem er for­senda þess að hægt verði að von­ast eftir áfram­hald­andi aukn­ingu afla,“ sagði Jóhann. „Þetta er eig­in­lega bara næstum skóla­bók­ar­dæmi um það hvernig er hægt með mark­vissum fisk­vernd­ar­að­gerðum að ná árangri.“


http://www.ruv.is/frett/thorskstofninn-ekki-sterkari-i-aratugi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár