Fólksfækkun í ákveðnum landshlutum: Lakar samgöngur og einsleitt atvinnulíf

Íbúum hefur fjölgað á öllum lands­svæðum á Íslandi síð­ast­liðin tíu ár nema á Vest­fjörðum og Norð­ur­landri vestra, þar sem íbúum hefur fækkað um 9,5 pró­sent og 6 pró­sent. Í nýrri skýrslu Íslands­banka um stöðu sveit­ar­fé­laga segir að ástæð­urnar fyrir fólks­fækkun á þessum svæðum séu meðal ann­ars eins­leitt atvinnu­líf og lakar sam­göngur.

Á sama tíma­bili hefur íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fjölgað um 14,7 pró­sent og íbúum á Suð­ur­nesjum fjölgað um 28,7 pró­sent. Mikil fjölgun á Suð­ur­nesjum skýrist einna helst af upp­bygg­ingu í Innri-Njarðvík og nýrri íbúa­byggð á varn­ar­stöð­inni, erlendu vinnu­afli og auknum fólks­flutn­ingum af höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna ódýrra íbúða­hús­næðis á Suð­ur­nesjum, að því er segir í skýrsl­unni.


Eft­ir­far­andi kort er birt í skýrsl­unni. Það sýnir fjölda íbúa í hverjum landsluta um síð­ustu ára­mót og hlut­falls­lega breyt­ingu síð­ustu tvö ár. Í sviga er síðan birt hlut­falls­leg breyt­ing á fjölda íbúa síð­ustu tíu ár.

[caption id="attachment_31665" align="aligncenter" width="681"] Kort af Íslandi og fjölda íbúa í hverjum lands­hluta. Fengin úr skýrslu Íslands­banka um stöðu sveit­ar­fé­laga.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár