Sigmundur Davíð á Channel 4: Aðrir geta lært af Íslandi

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var gestur í fréttum Channel 4 sjón­varps­stöðv­ar­innar í Bret­landi í gær. Frétta­kona Channel 4 spurði Sigmund Davíð meðal ann­ars um hvaða lær­dóm aðrar þjóðir gætu dregið af reynslu Íslend­inga í kjöl­far efna­hag­skrís­unnar 2008. For­sæt­is­ráð­herra sagði Breta og önnur ríki geta litið til end­ur­bóta sem gerðar hafa verið á fjár­mála­mark­aði. Hann tók fram að hann vildi ekki segja Bretum hvað þeir ættu að gera hvað varðar boð­aða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og að erfitt væri að heim­færa aðstæður á Íslandi til ann­arra ríkja. Honum þætti þó lög­gjafar Evr­ópu­ríkja ekki hafa gert nóg eftir hrun til þess að koma í veg fyrir aðra efna­hag­skrísu.

Sig­mundur Davíð sagði reynslu Íslands utan Evr­ópu­sam­bands­ins vera góða. Í krafti þess hafi verið hægt að end­ur­byggja efna­hag­inn, með eigin gjald­miðli og valdi yfir lög­gjöf og auð­lindum lands­ins. Þá sagði Sig­mundur Davíð efna­hag Íslands standa vel að vígi í dag, ferða­mönnum hafi fjölgað mikið, atvinnu­leysið sé lágt, verð­bólga einnig og kaup­máttur almenn­ings standi í hæstu hæðum. „Við þurfum þó að auka fjár­fest­ingu og utan­rík­is­við­skipti. Þess vegna ætlum við að losa gjald­eyr­is­höftin,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra. Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan. Það byrjar á mín­útu 1:15.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár