Örtröð í Leifsstöð - 30 prósent fleiri fara um flugvöllinn

Mikil örtröð mynd­að­ist á Kefla­vík­ur­flug­velli um mið­nætti í gær­kvöld. Ástæðan er sögð óvenju mikil flug­um­ferð en alls lentu 17 flug­vélar á vell­inum á rétt rúmum klukku­tíma, að því er segir í frétt RÚV um málið. Haft er eftir far­þega að flug­stöðin hafi varla ráðið við far­þega­fjöld­ann. Um tutt­ugu mín­útna bið hafi verið frá lend­ingu þar til hægt var að koma flug­véll­inni að flug­stöð­inni. Þar var margt um mann­inn og erfitt hafi verið að koma töskum frá tösku­band­inu og að útgangi flug­stöðv­ar­innar.


Umferð far­þega um flug­völl­inn hefur auk­ist gríð­ar­lega und­an­farin ár. Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins fóru tæp­lega 380 þús­und erlendir ferða­menn um Leifs­stöð, 30 pró­sent fleiri en á sama tíma­bili 2013. Fjölgun ferða­manna, talið í brott­förum, á tíma­bil­inu jan­úar til mars hvert ár má sjá á mynd­inni hér að ofan. Farþegar að Íslend­ingum með­töldum eru síðan enn fleiri, eða um 407 þús­und á tíma­bil­inu jan­úar til apríl 2015, samkvæmt tölum á vef­síðu Kefla­vík­ur­flug­vallar. Það er aukn­ing um 22,4 pró­sent frá sama tíma 2014.

Fram­kvæmdir hafa staðið yfir á frí­hafn­ar­svæði í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar og lauk þeim í síð­asta mán­uði. Inn­rit­un­ar­svæðið hefur ekki verið stækkað og álag á háann­ar­tímum verið mikið. Stækkun komusal­ar­ins um 700 fer­metra stendur yfir auk rúm­lega 5000 fer­metra stækk­unar á suð­ur­hluta flug­stöðv­ar­innar. Áætlað er að þessir hlutar verði komnir í gagnið í mars 2016. Til fram­tíðar liggur síðan vinn­ings­til­laga hönn­un­ar­sam­keppni um þró­un­ar­á­ætlun Kefla­vík­ur­flug­vallar til næstu 25 ára. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun flug­stöðv­ar­innar til norð­urs og lagn­ingu nýrrar flug­brautar vestan við flug­völl­inn.

Upp­haf­leg frétt hefur verið upp­færð með upp­lýs­ingum um heild­ar­fjölda far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár