Kristján Þór vildi ekki svara hvort Sigmundur Davíð hefði neitað að leggja fram frumvarpið

„Ég treysti mér nú til flestra verka sem að heyra undir heil­brigð­is­ráð­herra, ef að svo væri ekki þá væri ég nú ekki að takast á við þetta starf, ef ég treysti mér ekki til þeirra verka sem heil­brigð­is­ráð­herra er falið með lögum.“

Þetta sagði Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra í Viku­lok­unum á Rás 1 í dag, aðspurður um ástæðu þess að Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, lagði fram frum­varp um laga­setn­ingu á verk­föll ein­stakra aðild­ar­sam­banda BHM og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga. Þátta­stjórn­and­inn Helgi Seljan hafði þá spurt Krisján Þór hvort hann hefði ekki treyst sér sjálfur til að leggja frum­varpið fram.

„Þetta var ákvörðun rík­is­stjórnar að fela land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra að færa fram frum­varpið.“ Aðspurður um hvort Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki viljað leggja frum­varpið fram, svar­aði heil­brigð­is­ráð­herra: „Þú verður bara ein­fald­lega að spyrja hann að því.“

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gætir tölu­verðrar óánægju innan raða þing­flokks sjálf­stæð­is­flokks­ins, að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki lagt umrætt frum­varp fram fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar.

Kristján Þór kveðst styðja ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að leggja frum­varpið fram með þessum hætti. „Ég vil bara leggja höf­uð­á­herslu á það í umræðu um þetta, þá er það í mínum huga ekki aðal­at­riði máls. Aðal­at­riði máls, varð­andi þessa laga­setn­ingu, er spurn­ingin hvers vegna erum við að setja þessi lög? Ég hef reynt að svara því með þeim hætti að ég hef for­gangs­raðað því í mínum huga þannig að það sé fyrst og fremst gert í þágu þess að heil­brigð­is­kerfið geti þjón­u­stað það fólk sem á við mestan vanda í sínu heilsu­fari að glíma. Menn eiga miklu frekar að beina sjónum sínum að því,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herra í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár