Eiður Smári byrjar á bekknum - Hollendingar stilla upp sókndjörfu liði

Ein breyt­ing er á liði Íslands frá sigrinum gegn Kasakstan í síð­asta leik. Emil Hall­ferðs­son tekur sæti Eiðs Smára Guðjohn­sen í byrj­un­ar­lið­inu, sem þýðir að Jóhann Berg Guð­munds­son fer af vængnum og í fremstu víg­línu ásamt Kolbeini Sig­þórs­syni.

Fyrstir til að heyra byrj­un­ar­lið Íslands í leiknum þýð­ing­ar­mikla gegn Tékk­landi, sem fram fer á Laug­ar­dals­velli í kvöld, voru með­limir stuðn­ings­manna­hóps íslenska karla­lands­liðs­ins, Tólfunni. Heimir Hall­gríms­son lands­liðs­þjálf­ari til­kynnti byrj­un­ar­liðið fyrir hóp­unum á Ölveri fyrr í dag.

Hannes Þór Hall­dórs­son verður í mark­inu og vörn­ina fyrir framan hann skipa Birkir Már Sæv­ars­son, Kári Árnason, Ragnar Sig­urðs­son og Ari Freyr Skúlason. Á miðj­unni leika Emil Hall­freðs­son, Aron Einar Gunn­ars­son fyr­ir­liði, Gylfi Þór Sig­urðs­son og Birkir Bjarna­son. Fremstir verða þeir Jóhann Berg og Kolbeinn Sig­þórs­son.

Á sama tíma og leikur Íslend­inga og Tékka fer fram, eig­ast við Lettar og Hol­lend­ingar í Riga. Hol­lend­ingar verða að sigra ætli þeir sér að kom­ast upp úr A-riðli á Evr­ópu­meist­ara­mótið í fót­bolta sem fram fer í Frakk­landi næsta sumar. Hol­lend­ingar stilla upp firna­sterku liði sem hyggst blása til sóknar, en Klaas Jan Hun­telaar og Robin van Persie eru báðir í byrj­un­ar­liði Hol­lend­inga.

Þá má geta þess að Tyrkir, sem eru í fjórða sæti A-rið­ils, eru komnir yfir á móti Kasökum á úti­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár