Átta þúsund manns vilja í Háskóla Íslands - 450 í viðskiptafræði

Háskóla Íslands bár­ust um átta þús­und umsóknir um grunn- og fram­halds­nám fyrir kom­andi skólaár. Þar af sóttu fimm þús­und manns um grunn­nám og þrjú þús­und sóttu um fram­halds­nám. Athygli vekur að umsóknir um grunn­nám eru um tvö þús­und fleiri en sem nemur fjölda þeirra sem luku fram­halds­skóla­námi í vor og síð­ustu ára­mót.

Flestar umsóknir voru í við­skipta­fræði, sál­fræði og tölv­un­ar­fræði. Í til­kynn­ingu frá Háskóla Íslands kemur fram að umsóknum í grunn­nám í mennta­vís­indum og kennslu­fræði fjölgar milli ára. Alls bár­ust mennta­vís­inda­sviði nærri 670 umsóknir.


Á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði bár­ust tæp­lega 1000 umsóknir til grunn­náms. Þar af sækja 250 um að hefja nám í tölv­un­ar­fræði og 135 vilja hefja nám í ferða­mála­fræði.


Á hug­vís­inda­sviði sóttu rúm­lega 1070 manns um. Af þeim eru um 400 um nám í einu af þeim tólf tunug­málum sem boðið er upp á. Þá vilja 300 hefja grunn­nám í íslensku.


Umsóknir á félags­vís­inda­sviði voru tæp­lega 1.060 tals­ins til grunn­náms. Þar af vilja 446 læra við­skipta­fræði, mest allra deilda í háskól­anum. Umsóknir í laga­deild voru 160, um 130 í félags­ráð­gjöf og rúm­lega eitt hund­rað í stjórn­mála­fræði.


Um 1.100 umsóknir bár­ust heil­brigð­is­vís­inda­sviði en af þeim eru um 270 sem þreyta próf í lækn­is­fræði og sjúkra­þjálfun dag­ana 11. og 12. júní. Af þeim verða 48 teknir inn í lækn­is­fræði og 35 í sjúkra­þjálfun. Sálfræði á svið­inu er einnig vin­sæl og bár­ust um 300 umsóknir. Þá stefna um 180 í hjúkr­un­ar­fræði.


Miðað við fjölda umsókna og reynslu síð­ustu ára þá er búist við að nem­enda­fjöldi við Háskóla Íslands verði hart­nær sá sami og haustið 2014, eða á fjórt­ánda þús­und nem­enda.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár