Hlutabréf lækka eftir vaxtahækkun Seðlabankans

Virði hluta­bréfa í Kauphöll Íslands lækk­aði hjá flestum félögum í við­skiptum í dag. Úrvals­vísi­talan lækk­aði um 1,16 pró­sent en mæst lækk­uðu bréf Vodafone, alls um 2,8 pró­sent í um 160 millj­óna króna við­skiptum. Af 15 skráðum félögumn þá lækk­aði gengi ell­efu félaga. Þrjú stóðu í stað og N1 hækk­aði eitt félaga, um 0,4 pró­sent.

Lækkanir á hluta­bréfa­mark­aði í dag koma í kjöl­far nokk­urra hækk­ana síð­ustu tvo daga, sem meðal ann­ars mátti rekja til aðgerð­ar­á­ætl­unar stjórn­valda til los­unar fjár­magns­hafta. Fyrir opnun mark­aða í morgun til­kynnti Seðla­bank­inn um hækkun stýri­vaxta um 0,5 pró­sentur. Er það fyrsta stýri­vaxta­hækkun bank­ans í um tvö og hálft ár. Afnáms­á­ætl­unin og stýri­vaxta­á­kvörðun hafa því hreyft hressi­lega við verð­bréfa­mörk­uðum þessa vik­una.


Áhrif stýri­vaxta­á­kvörð­unar voru skýr á skulda­bréfa­mark­aði, einkum skila­boð pen­inga­stefnu­nefndar þess efnis að enn frek­ari vaxta­hækk­anir séu í píp­unum. Ávöxt­un­ar­krafa óverð­tryggðra rík­is­skulda­bréfa hækk­aði um 16 til 30 punkta í dag. Grein­ing­ar­deild Arion banka bendir á þetta í umfjöllun sinni um vaxta­á­kvörð­un­ina í dag. „Þó að ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar hafi verið í sam­ræmi við spá Grein­ing­ar­deildar og ann­arra grein­ing­ar­að­ila var sú fram­virka leið­sögn bank­ans sem finna mátti í lok yfir­lýs­ing­ar­innar e.t.v. skýr­ari en von var á, en henni lýkur á þeim orðum að ein­sýnt sé „að hækka þurfi vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum eigi að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma litið“,“ segir í grein­ingu deild­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár