Erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða: Áhrif á innlenda markaði óveruleg

Heimild líf­eyr­is­sjóða til fjár­fest­inga erlendis fyrir tíu millj­arða króna á ári mun ein og sér ekki hafa sér­stök áhrif til lækk­unar á inn­lendum eigna­mörk­uðum, að mati grein­ing­ar­að­ila. Á kynn­ing­ar­fundi um áætlun um losun gjald­eyr­is­hafta í Hörpu í gær var greint frá áformum um að leyfa líf­eyr­is­sjóðum að fjár­festa fyrir tíu millj­arða á ári erlendis til árs­ins 2020. Það jafn­gildir um fjórð­ungi af hreinu inn­streymi þeirra á tíma­bil­inu. Heim­ildin verður lög­fest fyrir árs­lok. Heim­ildir ein­stak­linga til gjald­eyr­is­við­skipta, þar með talið fjár­fest­ingar þeirra erlendis, verða jafn­framt rýmkaðar á haust­þingi.

Frá setn­ingu gjald­eyr­is­haft­anna hefur nokkuð verið fjallað um áhrif hafta á inn­lenda mark­aði og þann þrýst­ing sem höftin skapa á verð inn­lendra eigna, helst hluta­bréf, skulda­bréf og fast­eignir.Til að mynda Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru í dag stærstu eig­endur hluta­bréfa í Kaup­höll­inni.


Jón Bjarki Bentsson, sér­fræð­ingur hjá Grein­ingu Íslands­banka, segir rýmkun heim­ilda handa líf­eyr­is­sjóð­unum hljóma hóf­stillt. Hún sé ekki af því tagi að draga að ráði úr eft­ir­spurn þeirra eftir inn­lendum eignum enda ein­ungis brot af inn­flæði fjár­magns í sjóð­ina. Regína Bjarna­dóttir, for­stöðu­maður grein­ing­ar­deildar Arion banka, tekur í sama streng. Þessi heim­ild ein og sér ætti ekki að hafa veru­leg áhrif á mörk­uðum.


Jón Bjarki bendir enn­fremur á að inn­lendur hluta­bréfa­mark­aður sé vel studdur und­ir­liggj­andi stærðum og kenni­tölum úr rekstri skráðra fyr­ir­tækja. Þá hafi skulda­bréfa­mark­aður átt nokkuð erfitt upp­dráttar að und­an­förnu og ekki séu merki um bólu­myndun á honum. Velta megi fyrir sér áhrifum á fast­eigna­markað, þar sem verð hefur farið hækk­andi und­an­farin miss­eri og stórir fjár­festa­sjóðir verið virkir kaup­endur, en helstu ástæður fyrir hækk­unum sé þó sú að lítið hefur verið byggt und­an­farin ár og fjár­hags­staða heim­ila hafi að jafn­aði batnað á margan hátt. Því séu ólík­legt að auknar heim­ildir ein­stak­linga, fyr­ir­tækja og líf­eyr­is­sjóða til fjár­fest­inga erlendis hafi veru­leg áhrif, þegar af þeim verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár