Skattrannsóknarstjóri kominn með skattaskjólsgögnin

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur fengið afhent gögn um 400 til 500 félög skráð í skatta­skjólum og tengj­ast Íslend­ingum. Gögnin voru afhent síð­ast­lið­inn föstu­dag. Kaupverð var um 30 millj­ónir króna en í fyrstu vildi selj­and­inn fá 150 millj­ónir króna.

„Næsta skref er að átta sig betur á gögn­unum og fara yfir þau. Gögnin eru í sam­ræmi við það sýn­is­horn sem við höfðum áður séð. En það þarf að greina þau og setja upp áætlun um hvernig unnið verði úr þessu svo far­sæl­ast verði. Þetta er mikið magn,“ segir Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. „Það er best að segja sem minnst um það,“ segir hún, spurð um hvað búast mætti við að þessi vinna tæki langan tíma.


Rík­is­stjórnin sam­þykkti í apríl síð­ast­liðnum auka­fjár­veit­ingu til emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra upp á 37 millj­ónir króna til þess að kaupa gögnin um fjár­hags­legar eignir íslenskra aðila í þekktum skatta­skjólum. Íslensk stjórn­völd hafa aldrei fyrr keypt gögn sem þessi en bæði banda­rísk og þýsk stjórn­völd hafa farið þessa leið með nokkrum ávinn­ingi.


Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk sýn­is­horn af gögn­unum send í fyrra, og lét fjár­mála­ráðu­neytið vita af mál­inu. Sýn­is­hornin 50 sem emb­ættið fékk bentu sterk­lega til þess að skattaund­an­skot hafi átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár