Hagvöxtur var 2,9 prósent á fyrsta ársfjórðungi – Innflutningur eykst

Lands­fram­leiðsla jókst um 2,9 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi 2015 sam­an­borið við 1. árs­fjórð­ung 2014. Þjóð­ar­út­gjöld, sem sam­anstenda af neyslu og fjár­fest­ingu, juk­ust um 9,9 pró­sent á þessum þremur mán­uðum. Einka­neysla jókst um 3,9 pró­sent og sam­neysla um 1,5 pró­sent. Fjár­fest­ing jókst um 23,5 pró­sent. Útflutn­ingur jókst um 2,7 pró­sent en inn­flutn­ingur enn meira, eða um alls 17,4 pró­sent.

Hag­stofan birti í dag tölur um lands­fram­leiðslu á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Árs­tíð­ar­leið­rétt lands­fram­leiðsla dróst saman um 1,5 pró­sent milli síð­asta árs­fjórð­ungs 2014 og 1. árs­fjórð­ungs 2015. Þar af jókst einka­neysla um 0,8 pró­sent, sam­neysla um 0,3 pró­sent og fjár­fest­ing um 16,1 pró­sent. Inn­flutn­ingur jókst um 12,8 pró­sent á milli tíma­bil­anna en útflutn­ingur jókst um 2,4 pró­sent.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár