Hækkanir á mörkuðum eftir kynningu stjórnvalda

Öll hluta­bréf í Kaup­höll­inni hækk­uðu í dag að hluta­bréfum Granda und­an­skildum, sem lækk­uðu um 1,6 pró­sent í um 380 millj­óna króna við­skiptum. Á skulda­bréfa­mark­aði lækk­aði krafa óverð­tryggðra rík­is­bréfa sem túlka má sem jákvæðar fréttir fyrir rík­is­sjóð.

Dagurinn var heldur óvenju­legur á mörk­uðum en engin við­skipti voru með rík­is­skulda­bréf né íbúða­bréf þar til klukkan tvö. Sama gilti um hluta­bréf í trygg­inga­fé­lögum. Ástæðan var boð­aður blaða­manna­fundur stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta. Að ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins voru við­skipti stöðvuð þar til eftir fund­inn til þess að vernda jafn­ræði fjár­festa.


Á mark­aði mátti skynja jákvæð við­brögð við því sem fram kom á blaða­manna­fund­inum og var mest hreyf­ing á mark­að­inum eftir að fund­inum lauk. Mest hækk­uðu hluta­bréf í Nýherja, alls um 9,7 pró­sent, en upp­hæð við­skipta nam þó ein­ungis fimm millj­ónum króna. Hjá öðrum félögum nam hækk­unin á bil­inu um 1,1 til 2,9 pró­sentum. Mest voru við­skipti með bréf Icelandair Group, alls um 742 millj­ónir króna, en einnig voru tölu­verð við­skipti með bréf Eimskips, Marel og Granda. Alls hækk­aði OMXI8 hluta­bréfa­vísi­talan um 1,6 pró­sent.

#OMXI8 hækk­aði um 1,58% í dag. Skulda­bréfa­vísi­talan #NOMXIBB hækk­aði um 0,3%. Verð­tryggða um 0,14% og óverð­tryggða um 0,69% #höftin

— Nasdaq Iceland (@NasdaqIce) June 8, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár