Staða ríkissjóðs versnar vegna leiðréttingarinnar

Handbært fé rík­is­sjóðs frá rekstri versn­aði veru­lega milli fyrsta árs­fjórð­ungs 2015 og 2014. Í lok mars 2015 var hand­bært fé frá rekstri nei­kvætt um tæpan 43,1 millj­arð króna sam­an­borið við jákvætt hand­bært fé upp á 3,7 millj­arða króna á sama tíma 2014. Versn­andi staða skýrist að stærstum hluta með útgreiðslum vegna leið­rétt­ingar verð­tryggðra hús­næð­is­lána sem gjald­færar voru í lok árs 2014 en komu til greiðslu í jan­úar. Alls juk­ust gjöld um 22,6 millj­arða króna milli fyrstu árs­fjórð­unga. Inn­heimtar tekjur juk­ust um 9,1 millj­arð króna.

24 milljarðar frá Landsbankanum

Þetta kemur fram í yfir­liti fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um greiðslu­af­komu rík­is­sjóðs á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2015. Inn­heimtar tekjur rík­is­sjóðs á fyrsta árs­fjórð­ungi námu 165,2 millj­örðum króna. Það er 28,4 millj­örðum, eða 20,7 pró­sent yfir áætlun fjár­laga. Hið jákvæða frá­vik frá áætl­un­inni skýrist að mestu leyti af tæp­lega 24 millj­arða króna arði frá Lands­banka Íslands, segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.


Greiðslu­af­koma rík­is­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár