Gísli Marteinn: Áhætta fylgir flugvöllum í borg

„Það er ekki að ástæðu­lausu sem hópur um áhættu­mat sagði að allt ferju­flug, æfinga- og kennslu­flug ætti að flytj­ast af flug­vell­inum í Vatns­mýri og að þriðju flug­braut­ina ætti að leggja af,“ segir Gísli Marteinn Bald­urs­son, sjón­varps­maður og fyrrum borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í pistli á Tumblr vef­svæði sínu. Gísli Marteinn skrifar í pistl­inum um það ef sam­bæri­legt flug­slys og það sem varð við Tungu­bakka­flug­völl yrði við flug­völl­inn í Vatns­mýri.

„Nýlega varð flug­slys við Tungu­bakka­flug­völl í Mos­fellsbæ. Mikil mildi var að flug­mað­ur­inn slapp lítið meiddur. Slysið varð við Langa­tanga sam­kvæmt fréttum, og að sögn flug­manns­ins var hann nýbú­inn að hefja sig til flugs í vest­ur­átt. Samkvæmt sömu frétt var ekki um lág­flug að ræða eða neins­konar „glanna­flug“,“ segir Gísli Marteinn og birtir tvær myndir þar sem hann ber saman vega­lengd­ina milli flug­braut­ar­innar og brot­lend­ingar, við Vatns­mýr­ina. „Þetta er tæpa 700 metra frá flug­braut­ar­enda. Slys af þessum toga getur hent við hvaða flug­völl sem er,“ segir í pistl­inum.

[caption id="attachment_30708" align="aligncenter" width="1280"] Vega­lengd milli enda flug­brautar og brot­lend­ingar flug­vél­ar­innar sem tók á loft frá Tungu­bakka­flug­velli. Myndin er af Tumblr síðu Gísla Marteins.[/caption]

[caption id="attachment_30709" align="aligncenter" width="1222"] Sama vega­lengd frá enda flug­brautar á flug­vell­inum í Vatns­mýri. Myndin er af Tumblr síðu Gísla Marteins.[/caption]

„Allir vita að flug­völlum fylgir viss áhætta. Þess vegna er gert áhættu­mat á þeim. Síðast þegar gert var áhættu­mat á flug­vell­inum í Vatns­mýri var nið­ur­staðan sú að loka ætti þriðju flug­braut­inni (þess­ari sem áróð­urs­menn byrj­uðu í fyrra að kalla neyð­ar­braut). Í nefnd­inni sem komst að því voru fyrr­ver­andi flug­mála­stjóri, fram­kvæmda­stjóri almanna­varna rík­is­ins og fram­kvæmda­stjóri hjá Flug­mála­stjórn, svo nokkrir séu nefndir. Ekki bein­línis menn sem stefna vilja öryggi neins í hættu. Einróma lögðu þeir til að þriðju flug­braut­inni yrði lokað,“ segir Gísli Marteinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár