Tekjuhæstir á Íslandi með þrisvar sinnum hærri tekjur en þeir tekjulægstu

Tekju­hæsti fimmt­ungur Íslend­inga var með 3,1 sinnum hærri tekjur en tekju­lægsti fimmt­ung­ur­inn á síð­asta ári. Það er nokkuð lægra en árið 2009, þegar tekjur efsta fimmt­ungs­ins voru 4,2 sinnum hærri en tekjur lægsta fimmt­ungs­ins.

Hagstofa Íslands birti í dag nið­ur­stöður lífs­kjara­rann­sóknar þar sem not­ast er við fimmt­ungs­stuðul og Gini-stuð­ul­inn. Í frétt Hag­stof­unnar kemur fram að á árinu 2014 hafi dreif­ing tekna á Íslandi verið jafn­ari milli fólks en áður hefur sést í lífs­kjara­rann­sóknum stofn­un­ar­innar en hún var fyrst fram­kvæmd árið 2004.

Gini-stuð­ull­inn mæld­ist 22,7 á síð­asta ári en hæstur var hann árið 2009. Þá stóð hann í 29,6. Gini-stuð­ull­inn væri 100 ef einn ein­stak­lingur hefði allar tekjur sam­fé­lags­ins en 0 ef allir hefðu jafnar tekjur. Árið 2013 er nýjasta árið sem býður uppá alþjóð­legan sam­an­burð en þá var Ísland með næst lægsta Gini- og fimmt­unga­stuð­ul­inn í Evrópu á eftir Noregi.

Átta prósent undir lágtekjumörkum


Í fyrra voru 7,9 pró­sent Íslend­inga undir lág­tekju­mörkun, sam­kvæmt rann­sókn Hag­stof­unnar. Hlut­fallið er hið sama og árið 2012. Hlutfall þeirra sem voru undir lág­tekju­mörkum eða í hættu á félags­legri ein­angrun árið 2014 mæld­ist 11,1 pró­sent.

Háskóla­mennt­aðir eru í minni hættu á að vera fyrir neðan lág­tekju­mörk en þeir sem hafa minni menntun. Hins vegar var minni munur á þeim sem voru með grunn­menntun og þeim sem voru með fram­halds- og starfs­menntun. Leigj­endur voru mun lík­legri til að vera fyrir neðan lág­tekju­mörk en hús­eig­endur, 15,9 pró­sent sam­an­borið við 5,8 pró­sent.

Gini-Stuð­ull­inn á Íslandi 2004 til 2014

|

Create infographics

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár