Persónuvernd leggst gegn frumvarpi um vernd uppljóstrara

Ákvæði frum­varps til laga um vernd upp­ljóstr­ara, þar sem kveðið er á um und­an­þágu frá þagn­ar­skyldu starfs­stétta sem fjalla um við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar, sam­rým­ist hvorki sjón­ar­miðum um með­al­hóf né ákvæðum stjórn­ar­skrár og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um frið­helgi einka­lífs, að mati Per­sónu­verndar. Stofn­unin leggur til að sett verði á fót starfs­hópur sem hefur það hlut­verk að kanna nánar það lagaum­hverfi sem nú er til staðar og hvort raun­veru­leg þörf sé á laga­á­kvæðum sem þessum.

Níu þing­menn Bjartrar fram­tíðar og Pírata lögðu í mars síð­ast­liðnum fram frum­varp um miðlun upp­lýs­inga og vernd upp­ljóstr­ara. Samkvæmt frum­varp­inu eru mark­mið þess að stuðla að miðlun upp­lýs­inga um mis­gerð eða koma í veg fyrir mis­gerð, tryggja vernd upp­ljóstr­ara og tengdra aðila, og stuðla að aðgengi að upp­lýs­ingum sem varða almanna­hags­muni og eiga erindi til almenn­ings. Flutn­ings­maður er Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar. Meðal ann­ars var óskað eftir áliti Per­sónu­verndar.


Helsta athuga­semd stofn­un­ar­innar varðar 6. grein frum­varps­ins sem fjallar um frá­vik frá þagn­ar­skyldu. „Per­sónu­vernd gerir alvar­legar athuga­semdir við fram­an­greint ákvæði þar sem kveðið er á um refsi­leysi gagn­vart trún­aðar- og þagn­ar­skyldu­á­kvæðum laga. Í ákvæð­inu er lagt til að falla skuli frá sak­sókn ef miðlun upp­lýs­inga skv. II. kafla lag­anna brýtur gegn trún­aðar- og starfs­skyldum laga nema því aðeins að ríkir almanna­hags­munir krefj­ist máls­höfð­unar. Per­sónu­vernd telur að ákvæðið þurfi að afmarka nánar en eins og það er nú verður það ekki skilið á annan hátt en að t.d. læknar og aðrir heil­brigð­is­starfs­menn megi ávallt rjúfa skyldu sína til þag­mælsku um hagi sjúk­lings, sé slíkt trún­að­ar­rof þáttur í upp­ljóstrun sam­kvæmt ákvæðum frum­varp­ins,“ segir í áliti Per­sónu­verndar. Það er mat stofn­un­ar­innar að þetta brjóti gegn frið­helgi einka­lífs sem nýtur verndar 71. greinar stjórn­ar­skrár­innar og 8. greinar mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár