Bjarni Ben: „Geta ekki endalaust allir fengið leiðréttingar“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að vinnu­mark­aðs­mód­elið á Íslandi sé gallað og að hruni komið. Ítrekuð verk­föll og kröfur um leið­rétt­ingu launa sýni þetta. Þetta kom fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn frá Árna Páli Árnasyni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, um stöð­una á vinnu­mark­aði og verk­föll hjá hinu opin­bera.

Árni Páll benti á að verk­föll hefðu nú varað í um átta vikur hjá BHM og staðan í heil­brigð­is­geir­anum væri grafal­var­leg. Heil­brigð­is­stéttir væru að gef­ast upp.

Bjarni sagð­ist taka undir að ástandið væri víða mjög alvar­legt. Laun hjá hinu opin­bera hefðu hins vegar hækkað um sjö til átta pró­sent í fyrra á meðan verð­bólgan hafi hald­ist um eitt pró­sent. „Kaup­máttur launa í opin­bera geir­anum, hann stórjókst á síð­asta ári, en því miður virð­ist það ekki vera nóg.“ Menn komi að samn­inga­borð­inu og seg­ist hafa dreg­ist aftur úr öðrum stéttum síð­asta ára­tug­inn og þurfi að fá leið­rétt­ingu á því.

„Mitt svar við þessu er: það er ekki hægt að gera leið­rétt­ingar tíu ár aftur í tím­ann. Það geta ekki enda­laust allir fengið leið­rétt­ingar gagn­vart ein­hverjum öðrum við­mið­un­ar­hópum. Þetta er fyrir mig fyrst og fremst til vitnis um að vinnu­mark­aðs­mód­elið sem við erum að nota á Íslandi er gallað. Það er í raun og veru að hruni komið,“ sagði Bjarni. Hann sagði að Íslend­ingar þyrftu að færa sig nær nor­rænu vinnu­mark­aðs­mód­eli.

Bætti einni stétt upp gengisfellingu krónunnar


Árni Páll spurði þá Bjarna hvort hann hefði velt því fyrir sér að „hinn eilífi sam­an­burður sem hann er að tala um er bein afleið­ing þess að fólk er búið að upp­lifa gríð­ar­lega kjara­skerð­ingu frá hruni og sú kjara­skerð­ing er til­komin vegna geng­is­falls íslensku krón­unnar og hækk­unar lána sam­hliða?“ Hann spurði hvort það gæti verið að þjóðin sé ekki reiðu­búin að lifa við afleið­ing­arnar af íslensku krón­unni.

Þá sagði Árni að Bjarni hefði bætt einni stétt geng­is­fell­ingu krón­unnar fyrir ára­mót og sú stétt hafi verið læknar. „Það er ekki hægt að bæta einni stétt afleið­ingar íslensku krón­unnar. Það verður að axla ábyrgð af kjara­skerð­ing­unni fyrir aðra hópa,“ sagði hann og bætti því við að aðrar stéttir gætu líka sótt sér vinnu í öðrum löndum.

Bjarni svar­aði því til að það stæð­ist ekki skoðun að íslenska krónan væri sjálf­stætt vanda­mál. „Við höfum haft lága verð­bólgu og lækk­andi vexti og lær­dóm­ur­inn sem við eigum að draga núna er sá að ef við höldum áfram á þeirri braut en ætlum okkur ekki um of í ein­hverjum leið­rétt­ingum og kjara­bótum í gegnum taxta­hækk­anir eða nafn­launa­hækk­anir þá getum við notið enn lægri vaxta og við­var­andi lágrar verð­bólgu,“ sagði hann. Það væri hins vegar eflaust spenn­andi „fyrir hina, sem vilja losna við íslensku krón­una, að hvetja til þess að laun verði hækkuð upp úr öllu valdi, svo fylgi verð­bólga og háir vextir vegna þess og þegar upp er staðið þá munu menn stíga fram og segja sjáið, þetta var allt íslensku krón­unni að kenna.“ Hann sagði það eina sem ógn­aði íslensku efna­hags­lífi hvað varð­aði verð­bólgu og vexti væri staðan á vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár