Svona myndi verðbólgan hafa áhrif á umsamin lágmarkslaun

Virði 300 þús­und króna lág­marks­launa árið 2018 jafn­gildir um 267 þús­und krónum í dag, verði verð­bólga að jafn­aði 4 pró­sent á ári fram til maí 2018. Raun­hækkun lág­marks­launa sam­kvæmt nýlega und­ir­rit­uðum kjara­samn­ingum VR og Félags atvinnu­rek­enda yrði þá um 25 pró­sent á þessum þremur árum.

Lág­marks­laun, eða svokölluð lág­marks­tekju­trygg­ing, er í dag 214 þús­und krónur á mán­uði. Nýr kjara­samn­ingur hækkar lág­markið strax í 245 þús­und krónur á mán­uði og hækkar síðan ár frá ári þar til það stendur í 300 þús­und krónum í maí 2018.


Seðla­banki Íslands og Samtök atvinnu­lífs­ins eru meðal þeirra sem ótt­ast hafa verð­bólgu­skrið hækki launa­taxtar mikið við und­ir­skrift nýrra kjara­samn­inga. Hækkun verð­lags þýðir að raun­virði launa lækkar. Með öðrum orðum eru 300 þús­und krónur í dag minna virði í fram­tíð­inni vegna hækk­andi verð­lags.


Í töfl­unni hér að neðan má sjá hvert raun­virði lág­marks­launa er á ári hverju, miðað við mis­háa árlega verð­bólgu. Með lág­marks­trygg­ingu er átt við lægstu mögu­legu lág­marks­laun til greiðslu á mán­uði.

Verð­bólga á ári
Ár (í maí) Lág­marks­tekju­trygg­ing skv. kjara­samn­ingum 2% 3% 4% 5%
Er í dag 214.000 214.000 214.000 214.000 214.000
2015 245.000 245.000 245.000 245.000 245.000
2016 260.000 254.902 252.427 250.000 247.619
2017 280.000 269.127 263.927 258.876 253.968
2018 300.000 282.697 274.542 266.699 259.151

Haldist verð­bólga að með­al­tali tvö pró­sent á næstu árum verður virði 300 þús­und króna lág­marks­launa um 282 þús­und krónur á raun­virði dags­ins í dag árið 2018. Verði verð­bólga aftur á móti 5 pró­sent á ári verður virði 300 þús­und króna lág­marks­launa ekki nema um 259 þús­und krónur árið 2018.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans spáir því að verð­bólga verði 4,5 pró­sent að með­al­tali á næstu þremur árum. Í nýjasta hefti Pen­inga­mála, árs­fjórð­ungs­legu riti Seðla­bank­ans, er einnig spáð auk­inni verð­bólgu á kom­andi mán­uðum og árum, ekki síst vegna verð­bólgu­þrýst­ings frá vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár