Fæstir telja Alþingi standa vörð um hagsmuni almennings

Tæplega fimmtán pró­sent lands­manna telja Alþingi standa vörð um hags­muni almenn­ings, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­unar MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 15. til 20 maí og náði til 932 manns. Um 61 pró­sent aðspurðra sögð­ust frekar eða mjög ósam­mála því að Alþingi standi vörð um hags­muni almenn­ings.

Í könn­un­inni var spurt um afstöðu til nokk­urra þátta sem varða rík­is­stjórn­ina, stjórn­ar­and­stöð­una og Alþingi í heild. Hún hefur þrí­vegis verið fram­kvæmd, í júlí 2010, 2011 og 2012, þá í tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna.

[caption id="attachment_30315" align="aligncenter" width="665"] Nið­ur­stöður könn­unar MMR. Rauði lit­ur­inn stendur fyrir frekar eða mjög ósam­mála og blái lit­ur­inn stendur fyrir frekar eða mjög sam­mála.[/caption]

Tæplega 35 pró­sent svar­enda sögð­ust frekar eða mjög sam­mála full­yrð­ingu þess efnis að stjórn­ar­and­staðan myndi stjórna land­inu betur en rík­is­stjórnin. Um 38,3 pró­sent sögð­ust frekar eða mjög ósam­mála full­yrð­ing­unni.

[caption id="attachment_30316" align="aligncenter" width="712"] Nið­ur­stöður könn­unar MMR. Rauði lit­ur­inn stendur fyrir frekar eða mjög ósam­mála og blái lit­ur­inn stendur fyrir frekar eða mjög sam­mála.[/caption]

Þá var spurt hversu sam­mála eða ósam­mála svar­andi væri sam­mála full­yrð­ing­unni að rík­is­stjórnin leggi meiri áherslu á banka en heim­ilin í land­inu. Um 65,4 pró­sent sögð­ust sam­mála full­yrð­ing­unni en 18,6 pró­sent sögð­ust ósam­mála.

[caption id="attachment_30317" align="aligncenter" width="731"] Nið­ur­stöður könn­unar MMR. Rauði lit­ur­inn stendur fyrir frekar eða mjög ósam­mála og blái lit­ur­inn stendur fyrir frekar eða mjög sam­mála.[/caption]

Þeir sem til­heyrðu yngsta ald­urs­hópnum (18 til 29 ára) voru lík­legri til að vera sam­mála því að stjórn­ar­and­staðan myndi stjórna land­inu betur en rík­is­stjórnin en þeir sem eldri eru. Þannig sögð­ust 43,5% þeirra sem til­heyrðu ald­urs­hópnum 18-29 ára vera sam­mála því að stjórn­ar­and­staðan myndi stjórna land­inu betur en rík­is­stjórnin, borið saman við 29,3% þeirra sem til­heyrðu ald­urs­hópnum 50 til 67 ára.


Þeir sem til­heyrðu tekju­hæsta hópnum (milljón á mán­uði í heim­il­is­tekjur eða meira) voru lík­legri en þeir sem hafa lægri tekjur til að telja að Alþingi standi vörð um hags­muni almenn­ings. Þannig sögð­ust 22,6% þeirra sem til­heyrðu tekju­hópnum milljón á mán­uði eða meira vera sam­mála því að Alþingi standi vörð um hags­muni almenn­ins, borið saman við 8,1% þeirra sem til­heyrðu tekju­hópnum 400-599 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur.


32,0% þeirra sem styðja rík­is­stjórn­ina sögð­ust sam­mála því að rík­is­stjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heim­il­anna í land­inu.


56,4% þeirra sem ekki styðja rík­is­stjórn­ina telja að stjórn­ar­and­sta­aðan myndi stjórna land­inu betur en rík­is­stjórnin.


36,2% þeirra sem styðja rík­is­stjórn­ina sögð­ust vera sam­mála því að Alþingi standi vörð um hags­muni almennnings.


Könnun MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár