Stjórn Haga vill fjölga hluthöfum - Helmingur af hagnaði í arð

Stjórn og stjórn­endur Haga stefna að því að greiða hlut­höfum félags­ins árlegan arð sem nemur að lág­marki helm­ingi af hagn­aði lið­ins rekstr­ar­árs. Fyrir aðal­fund félags­ins á fimmtu­dag næst­kom­andi liggur til­laga um greiðslu arðs sem nemur alls 1.992 millj­ónum króna. Upphæðin nemur um 52 pró­sentum af rúm­lega 3,8 millj­arða króna hagn­aði síð­asta rekstr­ar­árs. Rekstr­arár félags­ins nær frá 1. mars 2014 til 28. febr­úar 2015.

Þetta kemur fram í ávarpi Krist­ínar Frið­geirs­dóttur, stjórn­ar­for­manni Haga, í árs­skýrslu félags­ins sem birt var í dag. Kristín segir í ávarp­inu að með þess­ari stefnu félags­ins og árangri þess hafi hluta­bréf í Högum verið ákjós­an­legur fjár­fest­ing­ar­kostur á mark­aði, jafn­vel fyrir almenn­ing. „Með þeirri áherslu­breyt­ingu sem nú er kynnt í arð­greiðslu­stefnu von­ast stjórnin eftir fjölgun hlut­hafa í fram­tíð­inni. Eitt af mark­miðum breyttrar arð­greiðslu­stefnu er áfram­hald­andi góð arð­semi eigin fjár. Arðsemi eigin fjár félags­ins und­an­farin ár hefur verið ein­stak­lega góð en þrátt fyrir lækkun á milli ára var hún 28,6% á síð­asta rekstr­ar­ári,“ segir Kristín. Hlut­hafar Haga voru 1.124 í lok febr­úar 2015.

[caption id="attachment_30258" align="aligncenter" width="302"] Fjöldi hlut­hafa Haga í lok febr­úar 2015. Tafla úr árs­skýrslu Haga.[/caption]

Hluta­bréfa­verð í Högum sveifl­að­ist á bil­inu 40 krónur á hlut til 46 króna á hlut á rekstr­ar­ár­inu. Það er í dag um 40 krónur á hlut. Myndin hér að neðan sýnir gengi hluta­bréfa félags­ins frá mars­mán­uði 2014 til dags­ins í dag.




Samkeppnin eykst


Kristín segir að stjórnin und­ir­búi nú félagið undir aukna sam­keppni. Finnur Árnason, for­stjóri Haga, talar einnig um aukna sam­keppni framundan í ávarpi sínu og auknar kröfur við­skipta­vina. „Framundan er aukin sam­keppni á mark­aði og breytt rekstr­ar­um­hverfi. Auknar kröfur við­skipta­vina snúa að holl­ustu, þæg­indum, vöru­úr­vali, upp­lýs­ingum um vörur, s.s. upp­runa­merk­ingar og inni­halds­merk­ingar, verð­lagi og þjón­ustu á sama tíma og net- og tækni­væð­ing eykur vægi sitt í verslun. Sem fyrr er við skipta­vin­ur­inn í önd­vegi hjá okkur. Við hlustum á óskir hans og reynum okkar besta við að upp­fylla þær. Við­skipta­vinur


okkar á fjöl­marga val­kosti og ef við ætlum að fá hann til að halda áfram að eiga við okkur við­skipti þá þurfum við að gera betur en keppi­nautar okkar. Það ætlum við að gera,“ segir hann.


Þótt hvorki Kristín né Finnur minn­ist sér­stak­lega á komu banda­rísku versl­un­ar­keðj­unnar Costco til lands­ins í sam­hengi við aukna sam­keppni, þá má telja víst að opnun versl­unar Costco sé meðal þeirra sam­keppn­is­auk­andi atriða sem átt er við.


Árs­skýrsla Haga.


Árs­upp­gjör Haga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár