Kjarasamningar og óvissa valda versnandi kjörum íbúðalána

Íslands­banki og Lands­bank­inn hafa hækkað vexti á föstum óverð­tryggðum íbúða­lánum til þriggja og fimm ára. Vaxta­tafla Íslands­banka breytt­ist í dag og er ástæðan hækkun ávöxt­un­ar­kröfu á mark­aði og hækk­andi fjár­magns­kostn­aður bank­ans vegna þessa, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Íslands­banka. Hækkunin nemur 0,3 pró­sentu­stigum á óverð­tryggðum lánum til þriggja ára og 0,4 pró­sentu­stigum á lánum til fimm ára.

Hjá Lands­bank­anum hækk­uðu vextir á sam­bæri­legum lánum þann 21. maí síð­ast­lið­inn. Hækkunin er 0,3 pró­sentur. Spurður um ástæður hækk­ana bendir Kristján Krist­jáns­son, upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans, á að vextir hafi hækkað á skulda­bréfa­mark­aði og fjár­mögnun því orðin dýr­ari fyrir bank­ann. Þá sé óvissa um áhrif kjara­samn­inga og ríf­legra launa­krafna auk þess sem óvissa ríki vegna afnáms gjald­eyr­is­hafta. Á fjár­mála­mörk­uðum séu und­ir­liggj­andi vænt­ingar um aukna verð­bólgu.


Arion banki hefur ekki tekið ákvörðun um hækkun á útláns­vöxtum en bank­inn fylgist með þró­un­inni, að sögn Haralds Guðna Eiðs­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa bank­ans.

Kjarasamningar undirritaðir

Síðasta föstu­dag var skrifað undir kjara­samn­inga sem ná til alls um 65 til 70 þús­und laun­þega. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa und­an­farnar vikur og mán­uði varað við áhrifum launa­hækk­ana og verð­bólgu sem þeim fylgir. Seðla­bank­inn hefur talað á svip­uðum nótum. Í kjöl­far und­ir­rit­unar kjara­samn­inga á föstu­dag var haft eftir Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra að líkur á vax­andi verð­bólgu séu veru­legar og hækk­andi álag á rík­is­skulda­bréfa­mark­aði sýni það.


Versn­andi kjör á íbúða­lánum eru ein birt­ing­ar­mynd vax­andi verð­bólgu. Hún mæld­ist 1,6 pró­sent í maí og var undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans, 16. mán­uð­inn í röð. Grein­ing­ar­deildir bank­anna spá allar auk­inni verð­bólgu á kom­andi mán­uðum. Þannig spáir grein­ing­ar­deild Lands­bank­ans því að verð­bólga geti orðið allt að 4,5 pró­sent að með­al­tali á næstu þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár