Skattar hafa hækkað í 132 skipti frá 2007

Frá árinu 2007 hafa verið gerðar 176 breyt­ingar á skatt­kerf­inu. Þar af hafa skattar verið hækk­aðir í 132 skipti og lækk­aðir í 44 skipti. Fyrir hverja skatta­lækkun hafa skattar því verið hækk­aðir þrisvar sinnum.

Við­skipta­ráð Íslands birti í dag upp­fært yfir­lit yfir skatta­breyt­ingar und­an­far­inna ára. Í frétt á vef­síðu ráðs­ins er boð­uðum aðgerðum um lækkun og ein­földun tekju­skatta fagnað og afnám tolla á fatnað og skó sagt fagn­að­ar­efni. „Það er von Við­skipta­ráðs að stjórn­völd haldi áfram að lækka skatta á ný á kom­andi árum,“ segir á vef­síðu Við­skipta­ráðs.


Veiga­mestu breyt­ing­arnar á skatt­kerf­inu frá árinu 2007 eru eft­ir­far­andi:

  • Tekju­skattur ein­stak­linga hefur hækkað um 34%
  • Útsvar hefur hækkað um 11%
  • Fjár­magnstekju­skattur hefur hækkað um 100%
  • Erfða­fjár­skattur hefur hækkað um 100%
  • Áfeng­is­gjöld hafa hækkað um 60%
  • Kolefn­is­gjöld á bensín og díselolíu hafa hækkað um 100%
  • Trygg­inga­gjald hefur hækkað um 37%
  • Útvarps­gjald hefur hækkað um 75%

Að mati Við­skipta­ráðs hefur þró­unin í skatta­málum verið jákvæð síð­ast­liðin tvö ár. „Annars vegar hafa skatta­lækk­anir í fyrsta sinn verið jafn margar eða fleiri en hækk­anir og hins vegar fækk­aði breyt­ingum veru­lega árið 2015. Síð­ast­liðin tvö ár hafa verið gerðar 23 skatta­lækk­anir og 12 skatta­hækk­anir. Árið 2014 var fyrsta skiptið sem skatta­lækk­anir voru fleiri en skatta­hækk­anir frá því að úttektin var fyrst fram­kvæmd,“ segir í frétt ráðs­ins.


Við­skipta­ráð telur mik­inn fjölda breyt­inga und­an­farin ár skapa óhag­fellt umhverfi fyrir verð­mæta­sköpun á Íslandi. „Tíðar skatta­hækk­anir draga úr fyr­ir­sjá­an­leika við rekstur fyr­ir­tækja og fjár­hags­lega áætl­ana­gerð ein­stak­linga. Auk þess hafa fjöl­margir nýir skattar verið inn­leiddir á und­an­förnum árum sem eykur flækju­stig skatt­kerf­is­ins og dregur þannig úr gagn­sæi. Afleið­ing þess er að ein­stak­lingar eru ekki jafn með­vit­aðir og áður um þann kostnað sem þeir bera vegna skatt­greiðslna.“


Frétt Við­skipta­ráðs Íslands um breyt­ingar á skatt­kerf­inu frá 2007.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár