Heimilum í vanskilum við Íbúðalánasjóð fækkar

Rúmlega 1.800 heim­ili voru í van­skilum með lán sín hjá Íbúða­lána­sjóði í apríl síð­ast­liðnum auk þess sem 73 heim­ili voru með lán sín fryst. Virði und­ir­liggj­andi lána í van­skilum til heim­ila nemur um 33 millj­örðum króna eða tæp­lega fimm pró­sent af útlánum sjóðs­ins til heim­ila. Hlut­fallið hefur lækkað mikið síð­ast­liðið ár en það var um 10,3 pró­sent í apríl 2014. Alls voru 4,28 pró­sent heim­ila með fast­eigna­lán sín hjá Íbúða­lána­sjóði með lánin í van­skilum í lok apríl en sama hlut­fall varið 4,52 pró­sent í mars.

Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs sem birt var síð­ast­lið­inn föstu­dag. Fram kemur að van­skil eða fryst­ingar útlána til ein­stak­linga ná til 4,96 pró­sent lána­safns­ins. Sam­bæri­legt hlut­fall í apríl 2014 var 10,28 pró­sent. Með lög­að­ilum með­töldum ná van­skil eða fryst­ingar til 7,02 pró­sent lána­safns­ins, sam­an­borið við 12,4 pró­sent í apríl 2014.

[caption id="attachment_30221" align="aligncenter" width="505"] Vanskil og fryst­ingar Íbúða­lána­sjóðs í apríl 2015. Graf úr mán­að­ar­legri skýrslu Íls.[/caption]

Heild­ar­út­lán í apríl námu 906 millj­örðum króna. Þar af voru almenn lán tæp­lega 300 millj­ónir króna. Með­al­fjár­hæð almennra lána var 11,9 millj­ónir króna. Þá námu upp­greiðslur lána um 1,4 millj­örðum króna í apríl sam­an­borið við 2,6 millj­arða í mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár