Stúka sem nota átti á Smáþjóðaleikunum kemur ekki í tæka tíð

Fimm hund­ruð og sjö­tíu manna fær­an­leg áhorf­enda­stúka, sem meðal ann­ars átti að nota á Smá­þjóða­leik­unum, kemst ekki til lands­ins frá Kína í tæka tíð. Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur (ÍBR) pant­aði stúk­una í mars­mán­uði til að eiga til taks og útleigu fyrir stærri íþrótta­við­burði, en knatt­spyrnu­fé­lagið Fram átti að fá hluta hennar að láni vegna heima­leikja meist­ara­flokka liðs­ins í Úlf­arsár­dal.

Sextándu Smá­þjóða­leik­arnir, sem nú fara fram á Íslandi, verða form­lega settir í næstu viku og munu standa dag­ana 1. til 6. júní næst­kom­andi. Til stóð að nota hluta stúkunnar við keppni í fim­leikum í hús­næði Ármanns í Laug­ar­dalnum. Óskar Örn Guð­brands­son, verk­efna­stjóri Smá­þjóða­leik­anna hjá Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­andi Íslands, segir að brugð­ist hafi verið við stöð­unni sem upp sé kom­inn, og seinkun stúkunnar muni ekki setja strik í reikn­ing­inn varð­andi fram­kvæmd fim­leika­keppn­innar.

Framarar neyðst til að færa heimaleiki sína í Laugardalinn


Þá hafði knatt­spyrnu­fé­lag­inu Fram verið lofað hluta stúkunnar, eða um fjögur hund­ruð sæti, fyrir heima­leiki liðs­ins í meist­ara­flokki, til að stand­ast kröfur Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands um aðstöðu áhorf­enda. Vegna tafa við afhend­ingu stúkunnar hefur félagið neyðst til að flytja heima­leiki sína yfir á Laug­ar­dals­völl. Sverrir Ein­ars­son, for­maður knatt­spyrnu­deildar Fram, segir að vonir standi til að hluti stúkunnar verði kom­inn í gagnið fyrir heima­leik meist­ara­flokks karla í fyrstu deild, gegn HK, sem fram fer 2. júlí næst­kom­andi. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur dráttur á afhend­ingu stúkunnar valdið Frömurum tölu­verðum óþæg­indum.

Frímann Ari Ferdin­ands­son, fram­kvæmda­stjóri ÍBR, segir í sam­tali við Kjarnann að kostn­aður við kaup og flutn­ing stúkunnar hljóði upp á um ell­efu millj­ónir króna. Hann harmar að stúkan hafi ekki kom­ist til lands­ins í tæka tíð fyrir heima­leiki Fram, en til stóð að nota stúk­una á Smá­þjóða­leik­unum ámilli leikja liðs­ins. Hann segir að áætlað sé að stúkan komi til lands­ins þann 16. júní næst­kom­andi og svo muni starfs­maður frá fyr­ir­tæk­inu í Kína koma til lands­ins í lok júní­mán­aðar til að leið­beina um upp­setn­ingu hennar.

Hann segir að stúkan hafi verið stað­sett í Grikk­landi þegar síð­ast frétt­ist, en rekja megi tafir á komu hennar til lands­ins meðal ann­ars til tafa hjá fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu í Kína, sem og seina­gangs hjá kín­verskum tolla­yf­ir­völdum við að afgreiða hana úr landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár