Gengu 55 kílómetra í Hvalfirði til styrktar félagi flogaveikra

Fjórir nem­endur í 10. bekk Rétt­ar­holts­skóla, þau Hjalti Jóel Magn­ús­son, Laura Sólveig Lefort Scheefer, Marinó Ívarsson og Mikael Dagur Hallsson, gengu Hval­fjörð­inn á dög­unum og söfn­uðu um leið styrkjum fyrir Lauf, félag floga­veikra.

Gangan og söfn­unin var liður í loka­verk­efni krakk­anna í skól­anum fyrir útskrift, en þeir gengu frá aust­an­verðum ganga­mun­anum að Hval­fjarð­ar­göng­unum að Fer­stiklu, eða um 55 kíló­metra leið. Fjór­menn­ing­arnir lögðu af stað í göng­una á mánu­dag­inn, og komust svo á leið­ar­enda í gær.

Fyrsta dag­inn gekk hóp­ur­inn í fjóra og hálfa klukku­stund, eða um átján kíló­metra leið. Þriðju­dag­ur­inn var svo tek­inn með trukki, en þá gengu krakk­arnir í átta og hálfa klukku­stund, og lögðu að baki hátt í 27 kíló­metra. Loka­sprett­ur­inn var svo tekin í gær, en þá gengu krakk­arnir í tvo tíma á leið­ar­enda, eða tólf kíló­metra.

Skemmtileg og krefjandi ganga


„Gangan var skemmti­leg og við fengum að kynn­ast hvert öðru mjög vel. Hún var rosa­lega erfið og tók mikið á, en við náðum að klára hana á þremur dögum,“ segir Laura Sólveig í sam­tali við Kjarnann.

„Ástæðan fyrir því að við völdum Lauf til að safna fyrir var sú að okkur finnst félagið standa fyrir mál­efni sem þurfi meiri umfjöllun í sam­fé­lag­inu. Á Íslandi er áætlað að fjórir til tíu af hverjum 1000 séu með floga­veiki og flestir sem grein­ast með sjúk­dóm­inn eru yngri en 20 ára. Einn okkar í hópnum þekkir fjöl­skyldu sem hefur glímt við sjúk­dóm­inn og hefur því séð hversu erfitt það er að glíma við slíkan sjúk­dóm, bæði fyrir mann­eskj­una með floga­veiki og einnig fjöl­skyld­una.Við viljum minnka for­dóma gagn­vart floga­veiki og auka þekk­ingu fólks á sjúk­dómnum svo að það geti brugð­ist rétt við ef að mann­eskja í návígi fær flog,“ segir Laura Sólveig Lefort Scheefer.

Fjór­menn­ing­arnir hafa nú þegar safnað um 55 þús­und krónum, en söfnun þeirra stendur enn yfir. Þeim sem vilja leggja henni lið er bent á banka­reikn­ing 0334-26-005774 á kenni­töl­unni 610884-0679.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár