Kaupþingstoppar færðir af Kvíabryggju fái þeir þunga fangelsisdóma í markaðsmisnotkunarmáli

Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, og Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings sam­steypunnar, verða færðir af Kvía­bryggju yfir í lokað fang­elsi, þá Litla-Hraun eða eftir atvikum fang­elsið á Hólms­heiði, til afplán­unar, fall­ist hér­aðs­dómur á kröfu ákæru­valds­ins í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Þá mun Ingólfur Helgason, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, fara beint í afplánun í lokað fang­elsi, verði hér­aðs­dómur við kröfu ákæru­valds­ins.

Krafðist þyngri refsinga yfir þremenningum


Björn Þor­valds­son sak­sókn­ari krafð­ist þess við mál­flutn­ing mark­aðs­mis­notk­un­ar­máls­ins í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á dög­unum að refsirammi yrði full­nýttur við ákvörðun refs­ingar vegna meintra brota þre­menn­ing­anna, og að sömu­leiðis yrði litið til 72. greinar almennra hegn­ing­ar­laga um aukna refs­ingu.

Mark­aðs­mis­notkun getur varðað allt að sex ára fang­elsi og í áður­nefndri grein almennra hegn­ing­ar­laga segir: „Hafi maður lagt það í vana sinn að fremja brot, einnar teg­undar eða fleiri, eða hann gerir það í atvinnu­skyni, má auka refs­ing­una svo, að bætt sé við hana allt að helm­ingi hennar. Eigi ítrekun á þessu sér stað, má refs­ingin tvö­fald­ast.“

Kröfu sinni, um þyngri refs­ingu yfir Sigurði og Hreiðar Má, til stuðn­ings vís­aði sak­sókn­ari til nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða, en í til­felli Ingólfs að meint brot hans falli undir ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga vegna þess hve þau hafi staðið yfir í langan tíma.

Gætu fengið allt að níu ára fangelsi


Fallist hér­aðs­dómur á kröfu ákæru­valds­ins gætu þre­menn­ing­arnir því hlotið allt að níu ára fang­elsi. Þar með myndu þeir ekki upp­fylla skil­yrði Fang­els­is­mála­stofn­unar um vistun í „opnu“ fang­elsi á borð við Kvía­bryggju og verða vistaðir í lok­uðu fang­elsi til afplán­unar. Eins og kunn­ugt er afplána nú Sigurður og Hreiðar þunga fang­els­is­dóma á Kvía­bryggju vegna aðildar sinnar að Al-Thani mál­inu. Skilyrði Fang­els­is­mála­yf­ir­valda fyrir vistun í fang­els­inu er að fangi afpláni að jafn­aði ekki lengur en þrjú ár á staðnum.

[caption id="attachment_29902" align="align­right" width="800"] Fang­elsið á Litla-Hrauni. Mynd: BÞH[/caption]

„Fang­els­is­mála­stofnun miðar við að fangar séu ekki vistaðir lengur en þrjú ár í opnum fang­elsum. Það gengur jafnt yfir alla skjól­stæð­ina Fang­els­is­mála­stofn­unar. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um mál­efni ein­stakra dóm­þola,“ segir Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Ekki liggur fyrir hvenær hér­aðs­dómur kveður upp dóm sinn í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings, en við­búð er að nið­ur­stöð­unni verði áfrýjað til Hæsta­rétts Íslands verði um sak­fell­ingar að ræða. Sigurður og Hreiðar Már verða því ekki fluttir á Litla-Hraun eða í nýtt fang­elsi á Hólms­heiði fyrr en að und­an­geng­inni nið­ur­stöðu Hæsta­réttar.

Fleiri mál í farvatninu


Sigurður, Hreiðar og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu og er sömu­leiðis ákærður í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu, eru einnig ákærðir í CLN-mál­inu svo­kall­aða þar sem þeim er gefið að sök að hafa mis­notað aðstöðu sína sem stjórn­endur bank­ans í lán­veit­ingum til nokk­urra félaga sem voru í eigu við­skipa­vina bank­ans.

Þriðja málið sem rekið er fyrir dóm­stólum, og bein­ist að Kaup­þingstopp­unum, er Marple-málið svo­nefnda, en Hreiðar Már og Magnús sæta þar ákæru ásamt Guðnýju Örnu Sveins­dóttur, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra bank­ans, og Skúla Þor­valds­syni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stórs hlut­hafa Kaup­þings. Ákært er fyrir fjár­drátt, þegar færðir voru átta millj­arðar króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple, sem var í eigu Skúla Þor­valds­sonar, án þess að heim­ild væri fyrir því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár